Brewdog hvetur viðskiptavini síðustu helgar til að fara í skimun

Einn starfsmaður veitingastaðarins Brewdog hefur greinst með kórónuveiruna, en allt starfsfólk staðarins fór í skimun í gær eftir að upplýsingar bárust um að smitaður einstaklingur hefði sótt staðinn síðustu helgi.

BrewDog aðalmynd
Auglýsing

Veit­inga­stað­ur­inn Brewdog hvetur þá sem heim­sóttu stað­inn föstu­dag­inn 11. sept­em­ber eða laug­ar­dag­inn 12. sept­em­ber til þess að fara í skimun, en í ljós hefur komið að einn starfs­maður sem var að vinna þá helg­ina hefur greinst með COVID-19.

„Við fengum þær upp­lýs­ingar frá smitrakn­ingateymi síð­degis á fimmtu­dag að hugs­an­lega hafi smit­aður við­skipta­vinur komið til okkar föstu­dag­inn 11. sept­em­ber. Allt okkar starfs­fólk fór strax í skimun í gær, föstu­dag­inn 18. sept­em­ber

Fyrr í dag fékk svo einn starf­maður okkar sím­tal um að hann væri smit­aður af COVID-19. Allt annað starfs­fólk fékk nei­kvæða útkomu. Þessi umræddi starfs­maður var síð­ast á vakt um síð­ustu helgi, var bæði föstu­dag og laug­ar­dag, og hefur ekki komið inná stað­inn síð­an. Grunur leikur á að hann hafi smit­ast af gesti frá þessum föstu­deg­i,“ segir í færslu á Face­book-­síðu stað­ar­ins, þar sem fram kemur að stað­ur­inn hafi unnið þétt með smitrakn­ingateymi almanna­varna frá því að upp­lýs­ingar bár­ust um mögu­legt smit.

Auglýsing

„Við viljum hvetja alla við­skipta­vini okkar sem voru á staðnum á föstu­dag­inn 11. sept­em­ber eða laug­ar­dag­inn 12. sept­em­ber til þess að fara í skimun,“ segir í færslu Brewdog, sem Andri Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri stað­ar­ins und­ir­rit­ar.

Víðir hvatti staði til þess að sýna ábyrgð og láta vita

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að eig­endur ein­hverra skemmti­staða, þar sem smit­aðir ein­stak­lingar hefðu verið á ferð, hefðu ein­dregið óskað eftir því að staðir þeirra yrðu ekki nafn­greindir opin­ber­lega.

Víðir sagði enn­fremur að yfir­völd teldu sig ekki hafa heim­ild til þess að greina frá nöfnum stað­anna, en hvatti eig­endur skemmti­stað­anna sem um ræðir til þess að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð og láta við­skipta­vini sína vita. Hann sagði að hann teldi að eng­inn myndi tapa á því.

Kæru við­skipta­vin­ir. Við fengum þær upp­lýs­ingar frá smitrakn­ingateymi síð­degis á fimmtu­dag að hugs­an­lega hafi smit­að­ur­...

Posted by BrewDog Reykja­vík on Sat­ur­day, Sept­em­ber 19, 2020






Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent