Úttekt Sjúkratrygginga á starfsemi Heilsustofnunar í Hveragerði ekki lokið

Úttekt Sjúkratrygginga Íslands á Heilsustofnuninni í Hveragerði hefur staðið yfir í ár, og er ekki lokið. Hún hefur tafist vegna COVID-19 og skipulagsbreytinga. Stofnunin fékk 875,5 milljónir króna úr ríkissjóði árið 2019.

heilsustofnun.jpg
Auglýsing

Sjúkra­­trygg­ingar Íslands hafa ekki lokið úttekt á rekstri og starf­­semi Heilsu­­stofn­unar Nátt­úru­lækn­inga­­fé­lags Íslands í Hvera­­gerði, sem veitir marg­þætta end­­ur­hæf­ing­­ar­­þjón­­ustu í starf­­semi sinn­i. 

Sjúkra­­trygg­ingar Íslands köll­uðu eftir ýmsum gögnum frá Heilsu­­stofn­un­inni í fyrra­haust, í kjöl­far þess að Stundin fjall­aði um háar greiðslur til Gunn­laugs K. Jóns­­son­­ar, for­­manns rekstr­­ar­­stjórnar henn­­ar. Kjarn­inn greindi frá því í jan­úar 2020 að við skoðun þeirra upp­­lýs­inga hafi verið talið til­­efni til að ráð­­ast í heild­­stæð­­ari úttekt á starf­­sem­inni, sem er að upp­i­­­stöðu fjár­­­mögnum úr opin­berum sjóð­­um. 

Aðspurð um hvar sú úttekt stæði segir María Heim­is­dótt­ir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga, að það verk­efni hafi taf­ist vega COVID-19 og breyt­inga innan stofn­un­ar­inn­ar. „Því er ekki lok­ið.“

Auglýsing

Heil­­stofnun end­­ur­nýj­aði þjón­ust­u­­samn­ing sinn við Sjúkra­­trygg­ingar Íslands fyrir ekki löngu. Hann tryggði 875,5 millj­­óna króna fjár­­veit­ingu til starf­­sem­innar á árinu 2019. Sá samn­ing­­ur, sem skrifað var undir eftir þriggja ára við­ræður og níu fram­­leng­ingar fyrri þjón­ust­u­­samn­ings, felur í sér ákvæði um hvernig sé heim­ilt að ráð­stafa fé sem greitt er vegna samn­ings­ins. Ríkið greiðir alls um 67 pró­­sent að heild­­ar­­rekstr­­ar­­kostn­aði stofn­un­­ar­innar en hitt sem upp á vantar er greitt með inn­­heimtu sér­­­tekna, þar á meðal sala stofn­un­­ar­innar á vörum og þjón­­ustu til ann­­arra.

Sam­kvæmt rekstr­ar­reikn­ingi Heilsu­stofn­unar Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands, sem er að finna í árs­reikn­ingi henn­ar, jókst kostn­aður við rekstur stjórnar félaga­sam­tak­anna um 43,3 pró­sent á árinu 2018, fór úr 12,8 millj­ónum króna í 18,4 millj­ónir króna. Í frétt Stund­ar­innar frá því í júlí 2019 kom fram að Gunn­laugur K. Jóns­son, stjórn­ar­for­maður Heilsu­stofn­un­ar­inn­ar, hefði fengið 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í greiðslur á því ári. 

Vildu ekki upp­lýsa um greiðslur

Kjarn­inn sendi síðla árs í fyrra fyr­ir­spurn til Brynjars Þórs­son­ar, fram­kvæmda­stjóra rekstrar hjá Heilsu­stofn­un, og spurði meðal ann­ars um auk­inn kostnað við rekstur stjórnar á árinu 2018. 

Í svörum hans sagði meðal ann­ars að launa stjórnar stofn­un­ar­innar væru ákveðin af stjórn Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands, eig­anda Heilsu­stofn­un­ar­inn­ar. For­seti þess félags er einnig stjórn­ar­for­maður Heilsu­stofn­un­ar­inn­ar, Gunn­laugur K. Jóns­son. Hann starfar einnig sem aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stofn­andi heilsu­stofn­un­ar­inn­ar, Jónas Krist­jáns­son, var langafi hans. 

Gunn­laugur tekur því sjálfur þátt í að ákveða laun sín. Auk þess er vara­for­seti Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags­ins, Geir Jón Þór­is­son, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn, vara­maður í stjórn Heilsu­stofn­un­ar. Aðrir í stjórn eru Inga Dóra Sig­fús­dóttir pró­fessor og Þórir Har­alds­son lög­fræð­ing­ur. Þá situr Bald­vin Jóns­son verk­efna­stjóri með Geir Jóni í vara­stjórn. 

Erfið sam­skipti

Í svörum fram­kvæmda­stjór­ans kom einnig fram að greiðslur fyrir stjórn­ar­setu í Heilsu­stofnun Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands á árinu 2018 hafi verið á á bil­inu 17 – 170 þús­und krónur á mán­uði. Í rekstr­ar­stjórn­inni sitja þrír aðal­menn auk þess þess sem tveir sitja í vara­stjórn. Jafn­vel þótt allir fimm hefðu fengið hæstu mögu­leg mán­að­ar­laun allt árið 2018 þá hefði heild­ar­kostn­aður samt sem áður ekki verið nema 10,2 millj­ónir króna. Þær greiðslur útskýra því ekki þann kostn­að­ar­auka sem varð við rekstur stjórnar á árinu 2018. 

Í svörum Brynjars við fyr­ir­spurn Kjarn­ans vegna þessa sagði að upp hefði komið „verk­efni sem stjórn þurfti að grípa inn í, umfram það sem áður hefur ver­ið. Þar var meðal ann­ars um að ræða samn­inga­mál við Sjúkra­trygg­ingar Íslands og erfið sam­skipta­vanda­mál innan stofn­un­ar­innar þar sem meðal ann­arra aðgerða þurfti að kalla til aðstoð vinnu­staða­sál­fræð­ings. Þungi þeirrar vinnu var unnin af stjórn­ar­for­mann­i.“ Þá sagði Brynjar að vegna mis­taka hefðu 2,5 millj­ónir króna verið færðar á þennan lið í árs­reikn­ingi, en það hafi ekki komið í ljós fyrr en eftir gerð hans. 

Trún­aður um stjórn­ar­laun

Kjarn­inn spurði stofn­un­ina einnig hvernig greiðslur skipt­ust niður á ein­stak­linga en fram­kvæmda­stjóri rekstrar neit­aði að svara þeirri fyr­ir­spurn og sagði greiðslur til ein­stak­linga trún­að­ar­mál. 

Þegar spurn­ingin var ítrek­uð, með vísun í að starf­semi Heilsu­stofn­unar væri að uppi­stöðu fjár­mögnuð með opin­beru fé, og óskað skýr­inga á því hvaða hags­munir krefð­ust þess að um stjórn­ar­laun ríkti trún­að­ur, þá barst ekk­ert svar. 

Í árs­reikn­ingi Heil­stofn­un­ar­innar fyrir árið 2018 kom fram að kostn­aður vegna umsjónar og rekst­urs fast­eigna/­lausa­fjár­muna hafi auk­ist um 64,2 pró­sent á árinu 2018 , úr 119,1 millj­ónum króna í 195,6 millj­ónir króna.

Brynjar svar­aði því til að á árinu 2018 hafi verið ráð­ist í „við­halds­fram­kvæmdir sem höfðu setið á hak­anum und­an­farin ár, m.a. skipti á þakjárni, end­ur­nýjun gól­f­efna og lag­fær­ing á her­bergja­álmum sem skýrir hækkun á liðnum milli ára.“

Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands

Heilsu­stofnun Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands hefur starfað frá árinu 1955. Starf­semin byggir á heild­rænum lækn­ingum og þar er heilsu­vandi þeirra ein­stak­linga sem þangað leita ­skoð­aður með það í huga að líta þurfi á and­legt, lík­am­legt og félags­legt ástand í sam­heng­i. 

Á heima­síðu hennar segir að með­ferð­ar­stefnan feli meðal ann­ars í sér „þá við­leitni að koma á og við­halda eðli­legum og heil­brigðum tengslum á milli ein­stak­lings­ins og umhverfis hans og efla varnir lík­ama og sálar gegn hvers­konar van­heilsu og sjúk­dóm­um.[...]Við með­ferð er lögð áhersla á mark­vissa hreyf­ingu, hollt matar­æði, slökun og hvíld. Fræðsla og fag­leg ráð­gjöf er stór þáttur í starf­inu og þar er lögð mest áhersla á heilsu­vernd og bætta lífs­hætti. Nátt­úru­lækn­inga­stefna Heilsu­stofn­unar NLFÍ er í fullu sam­ræmi við mark­mið Alþjóða­heil­brigði­stofn­un­ar­innar um bætt heil­brigði og heilsu­fars­þróun í heim­inum og fellur hún vel að íslenskri heil­brigð­is­stefn­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent