Tæpir fimm milljarðar króna til sveitarfélaganna

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar undirrituðu viljayfirlýsingu um að auka fjárveitingar til sveitarfélaganna um tæpa fimm milljarða króna til að bæta skuldastöðu þeirra til næstu fimm ára.

Karl Hafsteinsson, Bjarni Benediktsson, Aldís Hafsteinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson við undirritun samningsins í morgun
Karl Hafsteinsson, Bjarni Benediktsson, Aldís Hafsteinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson við undirritun samningsins í morgun
Auglýsing

Rík­is­stjórnin vill  veita sveit­ar­fé­lögum fjár­hags­lega við­spyrnu sem nemur 4,8 millj­örðum króna, á sama tíma og sveit­ar­fé­lögin hafa sam­mælst um afkomu­mark­mið sem er í sam­ræmi við fjár­mála­stefnu hins opin­bera fyrir næstu fimm árin. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins sem gefin var út fyrr í dag.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni ætla sveit­ar­fé­lögin og ríkið sér að stöðva hækkun skulda hins opin­bera sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu innan fimm ára, en búist er við að grípa þurfi til afkomu­bæt­andi ráð­staf­ana til þess.

Sam­komu­lagið inni­heldur fjölda verk­efna sem gert er ráð fyrir að ríki og sveit­ar­fé­lög vinni saman að á næstu árum. Þeirra á meðal er end­ur­skoðun á tekju­stofnun sveit­ar­fé­laga og reglu­verki Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga, auk þess sem útgjöld á ýmissi þjón­ustu við aldr­aða verði end­ur­met­in.

Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, ásamt Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sig­urði Inga Jóhanns­syni sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, und­ir­rit­uðu í morgun vilja­yf­ir­lýs­ingu um að veita sveit­ar­fé­lögum alls 4.805 millj­óna króna við­spyrnu. Með yfir­lýs­ing­unni lýstu ráð­herr­arnir því yfir að unnið yrði að því að afla þess­ara fjár­heim­ilda á Alþing­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent