Ummæli Ágústs Ólafs hljóti að hafa áhrif á stöðu hans

„Allt þetta hlýtur að hafa áhrif á stöðu hans fyrir næstu alþingiskosningar,“ skrifar Ragna Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar og formaður Ungra jafnaðarmanna, um ummæli sem Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður lét falla um helgina.

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

„Svona eiga þing­menn ekki að tala,“ skrifar Ragna Sig­urð­ar­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar og for­maður Ungra jafn­að­ar­manna á Twitter í dag og vísar þar til ummæla sem Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður flokks­ins, lét falla í við­tals­þætt­inum Sprengisandi um helg­ina. Sagði hann núver­andi rík­is­stjórn vera rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­son­ar. Þessu tóku margir sem kven­fyr­ir­litn­ingu þar sem kona, Katrín Jak­obs­dótt­ir, væri for­sæt­is­ráð­herra Íslands.



Þegar Krist­ján Krist­jáns­son þátta­stjórn­andi benti á að rík­is­stjórnir væru vana­lega kenndar við for­sæt­is­ráð­herra, í þessu til­viki Katrínu Jak­obs­dótt­ur, þá sagði Ágúst Ólaf­ur: „Við Willum [Þór Þórs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem var líka gestur þátt­ar­ins] þekkjum alveg hver stjórn­ar. Og það er ekki Katrín.“



Ágúst Ólafur var í kjöl­farið ásak­aður um að sýna af sér kven­fyr­ir­litn­ingu með orðum sín­um. Á meðal þeirra sem það gerðu var Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sem skrif­aði í stöðu­upp­færslu á Twitter í morg­un, þar sem hún hlekkj­aði í þráð Líf Magneu­dótt­ur, borg­ar­full­trúa Vinstri grænna, um mál­ið: „Botn­laus kven­fyr­ir­litn­ing. Og ekki í fyrsta sinn.“

Auglýsing


Líf hafði sjálf skrif­að: „Ágúst Ólaf­ur, finndu þér eitt­hvað annað að gera. Þú átt ekk­ert erindi á ALþingi jafn illa hald­inn af kven­fyr­ir­litn­ingu og raun ber vitni. Þetta er ekki í fyrsta sinn.“



Á meðal þeirra sem tjáðu sig á þræði Lífar var Kristín Soffía Jóns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sem skrif­aði: „Úff þetta er bara ekki í lag­i...“





Ágúst Ólafur baðst í dag afsök­unar á ummælum sínum með færslu á Face­book að honum þyki leitt að hafa sett orð sín fram með þeim hætti að hann gerði lítið úr for­ystu­hlut­verki Katrínar Jak­obs­dótt­ur.



Ragna skrifar í færslu sinni á Twitter að gott og gilt sé að biðj­ast afsök­unar en að ummælin minni „óneit­an­lega á þá kyn­ferð­is­legu áreitni sem þing­mað­ur­inn sýndi af sér og léleg við­brögð hans í kjöl­far opin­ber­unar henn­ar“. Hún bætir svo við: „Allt þetta hlýtur að hafa áhrif á stöðu hans fyrir næstu alþing­is­kosn­ing­ar.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent