Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að meginvextir bankans verði áfram eitt prósent. Vextir hafa verið lækkaðir þrisvar sinnum frá því að yfirstandandi efnahagsástand vegna COVID-19 faraldursins hófst, síðast í maí, og alls hafa stýrivextir lækkað um 3,75 prósentustig frá því í maí í fyrra.
Þeir hafa aldrei verið lægri í Íslandssögunni.
Í yfirlýsingu Peningastefnunefndar vegna ákvörðunarinnar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hafi hagvöxtur reynst heldur þróttmeiri á fyrri hluta þessa árs en gert var ráð fyrir í ágústhefti Peningamála. „Hins vegar benda hátíðnivísbendingar og kannanir til þess að hægt hafi á vexti eftirspurnar í lok sumars. Vegna aukinnar útbreiðslu veirunnar að undanförnu hafa efnahagshorfur versnað frá því sem gert var ráð fyrir í ágúst. Óvissan er hins vegar mikil og þróun efnahagsmála mun að töluverðu leyti ráðast af framvindu farsóttarinnar.
Þar segir einnig að traustari kjölfesta verðbólguvæntinga hafi gert peningastefnunefnd kleift að bregðast við versnandi efnahagshorfum með afgerandi hætti. „Lægri vextir og aðrar aðgerðir bankans sem gripið var til á vormánuðum hafa stutt við innlenda eftirspurn. Áhrif þeirra eiga þó eftir að koma fram að fullu og munu þær áfram styðja við þjóðarbúskapinn og stuðla að því að efnahagsbatinn verði hraðari en ella.
Peningastefnunefnd mun áfram fylgjast grannt með framvindu efnahagsmála og nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóðarbúskapinn og tryggja að lausara taumhald peningastefnunnar miðlist með eðlilegum hætti til heimila og fyrirtækja.“