Erlendar eignir lífeyrissjóðanna halda áfram að aukast

Rúmur þriðjungur allra eigna lífeyrissjóðanna er bundinn í erlendri mynt og hefur það hlutfall aldrei verið jafnhátt. Hagfræðingar hafa bent á að ákjósanlegt hlutfall væri að lágmarki 40 til 50 prósent hér á landi.

Samkvæmt hagfræðikenningum ætti hlutfall erlendra fjárfestinga lífeyrissjóðanna að vera hærra en það er núna
Samkvæmt hagfræðikenningum ætti hlutfall erlendra fjárfestinga lífeyrissjóðanna að vera hærra en það er núna
Auglýsing

Hlut­deild erlendra eigna af heild­ar­eignum líf­eyr­is­sjóð­anna nam 34 pró­sentum í ágúst síð­ast­liðnum og hefur það aldrei verið hærra. Hlut­deildin hefur vaxið örugg­lega frá afnámi gjald­eyr­is­haft­anna og er nú orðið tölu­vert hærri en hún var fyrir banka­hrunið árið 2008. Sam­kvæmt úttekt frá árinu 2014 væri æski­legt hlut­fall erlendra eigna í líf­eyr­is­sjóðum 40 til 50 pró­sent.

Þróun hlut­deildar erlendra eigna íslenskra líf­eyr­is­sjóða sam­kvæmt nýjum tölum frá Seðla­bank­anum má sjá á mynd hér að neð­an. Þar sést hvernig hún hefur hækkað úr rúmum fimmt­ungi frá losun gjald­eyr­is­haft­anna fyrir rúmum þremur árum síðan upp í rúman þriðj­ung í ágúst á þessu ári. Fyrr hafði hlut­deildin náð hámarki þegar gjald­eyr­is­höftin voru sett á í nóv­em­ber árið 2008, en þá voru erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna 31 pró­sent af heild­ar­eignum þeirra.

Auglýsing

Sam­kvæmt rit­inu Áhættu­dreif­ing eða ein­angrun eftir Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóra og Hersi Sig­ur­geirs­son dós­ent við við­skipta­fræði­deild HÍ kveða klass­ískar hag­fræði­kenn­ingar á um að ákjós­an­leg­ast væri fyrir íslenska líf­eyr­is­sjóði að eiga um 30-40 pró­sent eigna sinna erlend­is. Hins vegar er bætt við að þetta hlut­fall gæti verið enn hærra ef tekið er til­lit til sér­ís­lenskra þátta. 

Hlutdeild erlendra eigna í íslenskum lífeyrissjóðum. Heimild: Seðlabankinn.

Ásgeir og Hersir færa rök fyrir því að líf­eyr­is­sparn­aður í erlendri mynt sé for­senda þess að halda stöð­ug­leika á smærri mynt­svæðum þar sem hlut­deild inn­flutn­ings sé til­tölu­lega mikil af neyslu og sjóða­söfnun sé ráð­andi líf­eyr­is­form.

Hægt væri að leiða út að líf­eyr­is­sparn­aður eigi að hafa sömu mynt­sam­setn­ingu og almenn einka­neysla við­kom­andi lands, en sam­kvæmt þeirri reglu ætti hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna að vera um 40 til 50 pró­sent.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent