Samherji Holding ehf., annar helmingur Samherjasamstæðunnar, er kominn aftur yfir 30 prósent eignarhlut í Eimskip og mun gera yfirtökutilboð til allra hlutahafa félagsins. Þetta gerðist í dag þegar félagið bætti við sig 2,93 prósent hlut í skipafélaginu. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að Samherji stefni þó ekki að því að afskrá Eimskip. Alls á Samherji Holding nú 30,28 prósent í skipafélaginu.
Þetta er í annað sinn á þessu ári sem Samherji Holding fer yfir 30 prósent hlut í Eimskip, en við það myndast lögbundin yfirtökuskylda. Það gerðist fyrst 10. mars 2020.
Ástæða þess er sú að þegar einn fjárfestir er farinn að ráða yfir meira en 30 prósent í félagi þá eru tök hans á því orðin svo mikil að þær aðstæður geta skapast að hann geti tekið ákvarðanir, og hrint þeim í framkvæmd, sem þjóna hagsmunum fjárfestisins, ekki félagsins eða annarra hluthafa. Því er um lykilskilyrði í lögunum sem ætlað er að vernda minni hluthafa fyrir því að stórir fjárfestar geti valdið þeim skaða.
Tíu dögum síðar, 20. mars, hafði staðan í heiminum breyst hratt. Hlutabréfamarkaðir voru í frjálsu falli og hvert ríkið á fætur öðru var að loka landamærum sínum og hrinda í framkvæmd stórfelldum skerðingum á ferðafrelsi íbúa sinna, jafnt innan landamæra sem utan. Afleiðingin var hrun í eftirspurn eftir flest öllum vörum og þjónustum.
Þann dag sendi Samherji Holding Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands erindi þar sem félagið óskaði eftir að fá undanþágu frá yfirtökuskyldunni sem hafði myndast. Sú undanþágubeiðni var rökstudd vegna þeirra „sérstöku aðstæðna sem hefðu skapast á fjármálamarkaði vegna útbreiðslu Covid-19. Í lögum um verðbréfaviðskipti er fjármálaeftirlitinu veitt heimild til að veita slíka undanþágu ef sérstakar ástæður mæla með því.“
Þremur dögum síðar seldi Samherji 2,93 prósent hlut í Eimskip. Sú sala gerði það að verkum að atkvæðavægi Samherja í Eimskip fór niður í 29,99 prósent, eða í hæsta mögulega fjölda atkvæða sem halda má á án þess að mynda yfirtökuskyldu.
Fjármálaeftirlitið samþykkti beiðni Samherja um að sleppa við yfirtökuskyldu.
Viðmælendur Kjarnans á fjármálamarkaði og innan lífeyrissjóðakerfisins sögðu að mörgum fjárfestum þætti ákvörðunin ótrúleg. Svo virtist vera sem að hagsmunir einnar fyrirferðamikillar samstæðu væru teknir fram fyrir hagsmuni annarra hluthafa með því að „sleppa þeim af önglinum“ eins og einn viðmælandi orðaði það. Hluthafar hafi verið fullfærir til að taka þessa ákvörðun sjálfir og ákveða hvort að aðstæður kölluðu eftir því að taka yfirtökutilboðinu og hætta afskiptum að félaginu, eða hafna því og halda áfram að vera í hluthafahópi þess á þeim krefjandi tímum sem framundan eru.
Segjast vera að ljúka tilboðsskyldu sinni
Í tilkynningu til Kaupahallar Íslands í dag segir að tilgangur Samherja Holding með hlutafjárkaupunum nú sé fyrst og fremst að ljúka tilboðsskyldu sinni gagnvart öðrum hluthöfum sem undanþága fékkst fyrir í mars síðastliðnum.
Kaupin endurspegli þá trú sem stjórnendur Samherja Holding hafiá rekstri Eimskips. „Starfsfólk félagsins um allan heim hefur verið mjög samhent í þeirri umfangsmiklu endurskipulagningu sem fram hefur farið að undaförnu og á þakkir skildar fyrir þann góða árangur sem náðst hefur. Með svo samhentan hóp að verki er það trú okkar að batnandi afkoma eigi eftir að koma enn betur í ljós á næstu misserum. Eimskip er í meirihlutaeigu íslenskra lífeyrissjóða sem saman fara með rúmlega helming hlutafjár. Samherji Holding telur Eimskip vel til þess fallið að vera áfram skráð á almennan hlutabréfamarkað og stjórnendur Samherja Holding binda vonir við að eiga áfram gott samstarf við aðra hluthafa Eimskips.“
Mikill hagnaður og mikið eigið fé
Kjarninn greindi frá því í upphafi mánaðar að Samherji hf., annar helmingur Samherjasamstæðunnar, hagnaðist um 64,8 milljónir evra, um níu milljarða króna á meðalgengi ársins 2019, í fyrra. Það er mjög svipaður hagnaður og var af starfseminni árið 2018, þegar hagnaðurinn var 63,7 milljónir evra. Um er að ræða þann hluta sem heldur utan um þorra innlendrar starfsemi Samherjasamstæðunnar og starfsemi hennar í Færeyjum.
Tilkynnt var opinberlega um eigendaskipti á Samherja hf. 15. maí síðastliðinn. Þá birtist tilkynning á heimasíðu Samherjasamstæðunnar um að Þorsteinn Már, Helga S. Guðmundsdóttir og Kristján Vilhelmsson væru að færa næstum allt eignarhald á Samherja hf., sem er eignarhaldsfélag utan um þorra starfsemi samstæðunnar á Íslandi og í Færeyjum, til barna sinna.
Þau halda hins vegar áfram að vera eigendur að erlendu starfseminni, og halda á hinum stórum hlut í Eimskip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eignarhaldsfélagi, Samherja Holding ehf. Það félag hefur enn ekki skilað inn ársreikningi.
Samherja-samstæðan átti eigið fé upp á 110,7 milljarða króna í lok árs 2018. Hagnaður Samherja, þegar bæði Samherji hf. og Samherji Holding voru talin saman, vegna ársins 2018 nam samtals um 11,9 milljörðum króna.