Borgin hyggst styrkja Borgarleikhúsið um allt að 78 milljónir vegna COVID-19

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í vikunni að styrkja Borgarleikhúsið og Tjarnarbíó um allt að 83 milljónir króna vegna áhrifa kórónuveirufaraldurins.

Borgarleikhúsið sagði upp 8 starfsmönnum um síðustu mánaðamót.
Borgarleikhúsið sagði upp 8 starfsmönnum um síðustu mánaðamót.
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg ætlar sér að veita Leik­fé­lagi Reykja­víkur allt að 78 millj­óna króna stuðn­ing, til þess að koma til móts við hluta af því tapi sem Borg­ar­leik­húsið hefur orðið fyrir vegna COVID-19 og aðgerðir leik­húss­ins og rík­is­ins ná ekki yfir. 



Þá ætlar borgin sömu­leiðis að veita Tjarn­ar­bíói 5 milljón króna styrk til þess að mæta afleið­ingum far­ald­urs­ins. Báðar þessar til­lögur voru sam­þykktar á fundi borg­ar­ráðs á fimmtu­dag­inn og bíða sam­þykktar borg­ar­stjórn­ar. 



Í bókun borg­ar­ráðs­full­trúa meiri­hluta­flokk­anna fjög­urra í borg­inni segir að Borg­ar­leik­húsið sé ein mik­il­væg­asta menn­ing­ar­stofnun lands­ins og að tekjur þess hafi hrunið í heims­far­aldr­in­um. 

Auglýsing


Styrkur borg­ar­innar til leik­hús­anna gæti orðið lægri en þessar sam­tals 83 millj­ónir sem talað er um í til­lög­un­um, en í til­felli Borg­ar­leik­húss­ins mun borgin veita 50 millj­ónum til leik­fé­lags­ins í des­em­ber 2020 og svo stendur til að greiða út 28 millj­ónir til við­bótar þegar upp­gjör í febr­úar 2021 liggur fyr­ir.



„Á tíma­bil­inu mun leik­fé­lagið veita borg­inni reglu­lega upp­lýs­ingar um upp­gjör og stöðu mála. Verði nið­ur­staða rekstrar betri en ráð­gert er, lækkar fram­lag í sam­ræmi við það,“ segir í bókun full­trúa meiri­hlut­ans um mál­ið. Svipað eru uppi á ten­ingnum í til­felli Tjarn­ar­bíós, sem mun fá tveggja millj­óna króna styrk á þessu ári, en að þrjár millj­ónir skipt­ist svo niður á fyrstu sex mán­uði næsta árs.



 „Á tíma­bil­inu mun félagið veita borg­inni mán­að­ar­lega upp­lýs­ingar um upp­gjör og stöðu mála. Verði sam­komu­tak­mark­anir rýmkaðar og tekjur meiri en ráð­gert er lækkar fram­lagið í takt við það,“ segir í til­lög­unni.



Hafa orðið af meira en helm­ingi tekna



Bannað er að stunda sviðs­listir á Íslandi um þessar mundir og tekjur leik­hús­anna markast af því. Núna fyrir mán­aða­mót voru sagðar fréttir af því að Borg­ar­leik­húsið hefði sagt upp átta starfs­mönnum þvert á deild­ir. 



Í tölvu­pósti sem Borg­ar­leik­húsið sendi öllum starfs­mönnum vegna upp­sagn­anna kom fram að reynt hefði verið eftir fremsta megni að vernda störf og standa vörð um rekstur leik­húss­ins, sem hefði þó orðið af um 60 pró­sent tekna sinna, sem væri stór biti.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent