Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis um tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum.
Samkvæmt þeim verður íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný, í framhaldsskólum verða fjöldamörk aukin í 25 og hægt verður að hefja ýmsa þjónustustarfsemi sem krefst snertingar eða mikillar nándar, eins og starfsemi hárgreiðslu- og nuddstofa.
Almennar fjöldatakmarkanir miðast hins vegar áfram við tíu manns.
Nýju reglugerðirnar um takmarkanir á samkomum og skólahaldi taka gildi 18. nóvember, á miðvikudag í næstu viku, og gilda til og með 1. desember næstkomandi. Í fréttatilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að gert sé ráð fyrir að hægt verði að draga enn frekar úr samkomutakmörkunum í byrjun desember.
Breytingarnar sem taka gildi miðvikudaginn 18. nóvember eru eftirfarandi:
- Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar milli fólks verður leyfð með þeim skilyrðum að notast sé við andlitsgrímur. Þetta á við um s.s. hárgreiðslustofur, nuddstofur, öku- og flugkennslu og sambærilega starfsemi. Hámarksfjöldi viðskiptavina á sama tíma er 10 manns.
- Æfingar, íþróttastarf, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt jafnt inni og úti. Til að slíkt starf geti farið fram eru engar takmarkanir settar varðandi blöndun milli hópa. Fjöldamörk í hverju rými fara eftir reglugerð um takmarkanir á skólastarfi. Leikskólabörn og börn í 1.–4. bekk grunnskóla mega vera 50 saman að hámarki en nemendur í 5.–10. bekk að hámarki 25 saman.
- Í skólastarfi á framhaldsskólastigi mega nemendur og starfsmenn vera að hámarki 25 í hverju rými í stað 10 áður en ber að nota andlitsgrímur sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð.
- Veitt er undanþágu frá grímuskyldu þeim sem ekki geta notað grímur, t.d. af heilsufarsástæðum eða ef viðkomandi skortir þroska eða skilning til að bera grímu. Þeir sem fengið hafa COVID-19 eru einnig undanþegnir grímuskyldu geti þeir sýnt gilt vottorð þess efnis.