Sóttvarnaráðstöfunum á landamærum Íslands verður fram haldið í óbreyttri mynd þar til 1. febrúar á næsta ári. Þetta kemur fram í frétt á vef stjórnarráðsins sem birt var í dag.
Samkvæmt fréttinni var ákvörðunin um óbreytt fyrirkomulag tekin á ríkisstjórnarfundi í morgun, en þar var ennfremur tekin sú ákvörðun að frá og með 10. desember verði vottorð um að fólk hafi fengið COVID-19 og að sýking sé afstaðin tekin gild og veiti undanþágu frá þeim kröfum sem annars eru gerðar.
Ekki verður tekin ákvörðun um áframhald fyrirkomulagsins á landamærunum þangað til 15. janúar á næsta ári.Ákvörðunin byggir m.a. á minnisblaði vinnuhóps heilbrigðisráðuneytisins um viðurkenningu vottorða og efnahagslegu mati starfshóps fjármála- og efnahagsráðuneytisins á tillögum að breyttum aðgerðum á landamærum.
Farþegar geta samkvæmt þessu áfram valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins.