Allar póstsendingar frá hinu opinbera verði stafrænar árið 2025

Gert er ráð fyrir að ríkið spari sér 300-700 millljónir á ári með því að senda öll gögn í stafræn pósthólf fremur en með bréfpósti. Frumvarpsdrög fjármálaráðherra um þetta hafa verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda.

Fjármálaráðuneytið
Auglýsing

Gert er ráð fyrir því að rík­is­sjóður spari 300 til 700 millj­ónir á ári hverju og umtals­verð hag­ræð­ing verði einnig hjá sveit­ar­fé­lög­um, ef nýtt frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um staf­rænt póst­hólf verður að veru­leika, en drög að frum­varp­inu voru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í gær.

Með frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að það verði meg­in­regla að stjórn­völd sendi gögn til ein­stak­linga og lög­að­ila með staf­rænum hætti. Allar stofn­anir verða þannig í fyll­ingu tím­ans skyld­aðar til þess að senda gögn staf­rænt og er stefnt að því að allar stofn­anir verði byrj­aðar að bjóða upp á staf­rænar birt­ingar eigi síðar en 1. jan­úar 2025.

Ætlan frum­varps­ins er meðal ann­ars að eyða öllum vafa um að rétt­ar­á­hrif slíkra staf­rænna birt­inga séu þau sömu og gilda um bréf­póst í dag. Tugir stofn­ana nota þegar póst­hólfið á Ísland.is til að senda gögn á fólk og fyr­ir­tæki, án þess að sér­stök lög eða reglur um þessa mið­lægu þjón­ustu­gátt stjórn­valda séu til stað­ar.

Auglýsing

Talið örugg­ara en bréf­póstur

Í umfjöllun um mat á áhrifum frum­varps­ins, sem fylgir drög­un­um, segir að öryggi send­inga frá hinu opin­bera muni aukast til muna, þar sem bréf­póstur sé gjarnan „með­höndl­aður af nokkrum ein­stak­lingum og því ekki fylli­lega örugg með­ferð gagna,“ en staf­rænar send­ingar fari beint í póst­hólf þess sem upp­lýs­ing­arnar séu ætl­að­ar.

Auk áður­nefnds fjár­hags­legs hag­ræðis fyrir ríkið og sveit­ar­sjóði segir einnig að frum­varpið muni hafa jákvæð áhrif á umferð, kolefn­islosun og tíma­notkun almenn­ings.

„Þrátt fyrir að ætla megi að í upp­hafi komi til auk­ins kostn­aðar og auk­innar vinnu hjá stofn­un­um, sér­tak­lega á inn­leið­ing­ar­tíma­bili, þá er ljóst að til lengri tíma verður tölu­verð hag­ræð­ing fyrir sam­fé­lagið allt,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Rík­is­stjórnin stað­festi í maí árið 2018 þá stefnu sína að staf­ræn þjón­usta eigi að verða meg­in­leið sam­skipta á milli hins opin­bera, almenn­ings og fyr­ir­tækja og er frum­varpið sem fjár­mála­ráð­herra hefur nú lagt fram til kynn­ingar liður í þeirri ætl­an.

Danska leiðin far­in 

Í grein­ar­gerð segir að horft hafi verið til fram­kvæmd­ar­innar á Norð­ur­löndum við smíði frum­varps­ins.

Í Finn­landi, Nor­egi og Sví­þjóð sé fram­kvæmdin sú að rík­is­stofn­unum og sveit­ar­fé­lögum upp að vissu marki sé skylt að bjóða upp á gagna­send­ingar í staf­ræn póst­hólf, en ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum ekki skylt að hafa slík póst­hólf. Reynslan þaðan sýni að notkun þessa úrræðis sé til­tölu­lega lítið útbreidd í lönd­unum þrem­ur.

Í Dan­mörku er reynslan hins vegar önn­ur, en þar er opin­berum aðilum skylt að senda gögn í staf­ræn póst­hólf. Ein­stak­lingum og lög­að­ilum er einnig skylt að hafa slík póst­hólf og ber að kynna sér gögn sem þangað ber­ast og bregð­ast við þeim, eftir aðstæð­um. Íslenska frum­varpið byggir á dönsku leið­inni í þessum efn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent