Heimsfaraldurinn rekur unga Íslendinga aftur heim í foreldrahús

Hlutfall ungra Íslendinga sem búa heima hjá foreldrum sínum hefur farið úr 42 í 70 prósent á innan við ári. Ljóst er að COVID-19 spilar þar stóra rullu, en atvinnuleysi hjá 18-24 ára hefur aukist um 134 prósent á einu ári.

ungt fólk flutningar
Auglýsing

Hlut­fall þeirra lands­manna á aldr­inum 18-24 ára sem býr í for­eldra­húsum hefur stór­auk­ist und­an­farið ár, og sér­stak­lega eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á snemma á árinu 2020. Í lok árs 2019 var hlut­fall þeirra lands­manna á því ald­urs­bili sem bjó í for­eldra­húsum 42 pró­sent. Í síð­ustu könnun sem Zenter gerði fyrir Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un, í ágúst síð­ast­liðn­um, var það hlut­fall hins vegar komið upp í 70 pró­sent.

Frá þessu er greint í umfjöllun á síðu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar. Þar segir að um gríð­ar­lega aukn­ingu sé að ræða á skömmum tíma og ljóst sé að heims­far­ald­ur­inn spili þar stórt hlut­verk. „Því eru sterkar vís­bend­ingar um að COVID-far­aldur sé að koma einna verst niður á unga fólk­inu og að það sé fast í for­eldra­húsum og sé hvorki að leita inn á leigu­markað né í eigið hús­næði um þessar mund­ir.“

Stór­aukið atvinnu­leysi vigtar þungt

Mik­ill sam­dráttur í ferða­þjón­ustu og tengdum þjón­ustu­geirum þar sem margt ungt fólk hefur að jafn­aði starfað, hefur leitt til þess að fjöldi þeirra sem eru á aldr­inum 18-24 ára sem eru atvinnu­lausir hefur stór­auk­ist. 

Í lok októ­ber í fyrra  voru 920 ein­stak­lingar á því ald­urs­bili án atvinnu. Í lok októ­ber 2020 taldi sá hópur 2.157 og því hefur atvinnu­lausum ung­mennum fjölgað um 1.237 á einu ári, eða um 134 pró­sent. 

Auglýsing
Í umfjöllun Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar er vakin athygli á því að þessi þróun hjá yngsta hópi full­orð­inna Íslend­inga er að eiga sér stað á sama tíma og leigj­endum fari fækk­andi. Þar spilar inn í að aðstæður til hús­næð­is­kaupa hafa aldrei verið hag­stæð­ari en nú vegna lágra stýri­vaxta, en þeir eru nú 0,75 pró­sent og hafa ekki verið lægri í Íslands­sög­unni. Fyrir vikið hafa hús­næð­is­lána­vextir lækkað mik­ið. Nú er til að mynda hægt að fá óverð­tryggð hús­næð­is­lán hjá rík­is­bönk­unum á 3,5 pró­sent breyti­legum vöxtum og síð­asta vaxta­lækkun gefur vænt­ingar til þess að þeir vextir geti jafn­vel lækkað enn frek­ar. Í upp­hafi árs 2019 voru sam­bæri­legir vextir á bil­inu sex til 6,6 pró­sent. 

Leigj­endur ekki verið færri frá því í kringum hrunið

Kann­anir sem Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun hefur látið gera benda til þess að hlut­fall lands­manna sem er á leigu­mark­aði hafi ekki verið lægra frá því í kringum hrunið 2008, en leigj­endur voru um 12 pró­sent lands­manna í lok þess árs. Síðan þá hefur með­al­talið verið í kringum 16 pró­sent en frá miðju ári 2019 hefur það farið hratt lækk­andi úr því að vera 18 pró­sent í júlí á því ári í að vera 13 pró­sent ári síð­ar. 

Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun bendir á að leigj­endum hafi tekið að fækka á svip­uðum tíma og vextir fóru að lækka og því sé fylgni þar á milli. Sam­kvæmt nýj­ustu leigukönnun stofn­un­ar­innar vildu enda níu af hverjum tíu leigj­endum heldur búa í eigin hús­næði en leigja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent