Kjartan Briem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Isavia ANS og mun hann hefja störf 1. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu Isavia í dag.
Isavia ANS ehf. er dótturfélag Isaiva ohf. og annast rekstur og uppbygginu flugleiðsöguþjónustu, þar með talið flugumferðarþjónustu, fjarskipta- og leiðsögukerfa og aðra skylda starfsemi.
„Kjartan hefur langa reynslu af alþjóðlegum samskiptum, og hefur unnið á fjarskiptamarkaðnum á Íslandi í yfir 20 ár, lengst af sem stjórnandi á tæknisviði og nú síðast sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Vodafone á Íslandi. Kjartan er með M.Sc-gráðu í rafmagnsverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) með áherslu á fjarskipti,“ segir í tilkynningunni.
„Ég er afskaplega ánægð með að fá Kjartan í stjórnendateymi Isavia ANS,“ segir Elín Árnadóttir, stjórnarformaður félagsins. „Við í stjórn félagsins teljum að stjórnendareynsla hans og tækniþekking muni gagnast Isavia ANS vel og bjóðum við Kjartan velkominn til starfa.“