Fjárfestingafélagið Stoðir á nú 8,28 prósent hlut í Kviku banka. Það gerir Stoðir að stærsta eiganda Kviku banka, en áður var Lífeyrissjóður verzlunarmanna stærsti eigandinn með 7,6 prósent eignarhlut.
Stoðir eru stærsti eigandi tryggingafélagsins TM, en tilkynnt var um samruna þess og Kviku fyrir skemmstu. Félagið seldi í dag allan eignarhlut sinn í tryggingafélaginu sem var umfram 9,9 prósent, en áður átti það 11,6 prósent. hlut. Fyrir selda hlutinn var greitt með hlutabréfum í Kviku.
Þetta kemur fram í flöggunum til Kauphallar Íslands í kvöld. Þar segir orðrétt: „Í ljósi fyrirhugaðs samruna TM hf. og Kviku banka hf. hafa Stoðir hf. dregið til baka umsókn sína um að fara með virkan eignarhlut í TM hf. og hafa því nú selt þann hluta eignarhlutar síns í TM sem var umfram 9,9 prósent, gegn greiðslu með hlutabréfum í Kviku banka.“
Fréttablaðið greindi frá því á miðvikudag að Stoðir hefðu undanfarið verið að byggja upp stöðu í Kviku í gegnum framvirka samninga en sá eignarhlutur var þá skráður á þann banka sem samningurinn var gerður við, ekki Stoðir.
Stoðir verða áfram sem áður stærsti eigandinn í TM. Auk þess er félagið stærsti innlendi einkafjárfestirinn í Arion banka með 4,99 prósent hlut og stærsti eigandi Símans með 14,86 prósent hlut.
Tilkynnt um sameiningu fyrir skemmstu
Stjórnir Kviku banka, TM og Lykils samþykktu 25. nóvember síðastliðinn að sameina félögin, með fyrirvara um að Fjármálaeftirlitið, Samkeppniseftirlitið og hluthafar samþykki samrunann. Gangi samruninn eftir fá hluthafar í TM 54,4 prósenta hlut í sameinuðu félagi en hluthafar í Kviku 45,6 prósent.
Marinó Örn Tryggvason og Sigurður Viðarsson, forstjórar félaganna, munu áfram gegna stöðum sínum gangi sameiningin eftir. Marinó Örn verður forstjóri Kviku og Sigurður verður forstjóri TM trygginga.
Eiga eigið fé upp á 25 milljarða
Stoðir, sem hét einu sinni FL Group, töpuðu 477 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2020. Á sama tímabili í fyrra hagnaðist félagið um rúma tvo milljarða króna. Tapið má rekja til breytinga á virði fjárfestingaeigna sem lækkuðu um 694 milljónir króna á tímabilinu. Gengishagnaður upp á 318 milljónir króna vóg upp það tak.
Eignir Stoða voru metnar á 24,7 milljarða króna í lok júní síðastliðins og höfðu rýrnað um tæpan hálfan milljarð króna frá áramótum. Eignir Stoða skiptast að uppistöðu í fjárfestingar upp á 19,3 milljarða króna, reiðufé upp á 3,3 milljarða króna og veitt lán upp á rúma tvo milljarða króna.
Félagið skuldar hins vegar nánast ekkert og eigið fé þess því jafnt eignunum, eða 24,7 milljarðar króna. Þetta kom fram í árshlutareikningi Stoða sem birtur var í september.
Tengsl við gamla FL Group
Stærstu hluthafar Stoða eru S121 ehf. (64,6 prósent), Landsbankinn (12,1 prósent) og sjóðir í stýringu Stefnis, sjóðstýringafyrirtækis Arion banka (10,12 prósent).
Stærstu endanlegu eigendur S121 hafa margir tengsl við gamla FL Group, annað hvort störfuðu þar eða sátu í stjórn. Má þar nefna félög tengd Magnúsi Ármann, sem var hluthafi í FL Group og sat í stjórn félagsins, Örvari Kjærnested, sem var yfir starfsemi FL Group London fyrir hrun, og Bernhard Bogasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóri lögfræðisviðs FL Group. Þá á Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, líka stóran hlut.
Auk þess á eiginkona Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra FL Group/Stoða og núverandi stjórnarformanns Stoða, og fjölskylda hennar stóran hlut. Með Jóni í stjórninni sitja Sigurjón Pálsson og Örvar Kjærnested. Framkvæmdastjóri félagsins er Júlíus Þorfinnsson.