Segir lágvaxtaumhverfið hafa ýtt undir áhættusækni

Sérfræðingur hjá Kviku eignastýringu segir lækkandi vaxtastig og væntingar um bóluefni vera meðal ástæðna þess að hlutabréfamarkaðurinn hefur hækkað það sem af er ári í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Húsnæði Kauphallarinnar
Húsnæði Kauphallarinnar
Auglýsing

Lágir vextir og jákvæðar fréttir um bólu­efni hafa leitt til hækk­unar verðs á hluta­bréfum á þessu ári. Auk þess hefur auk­inn áhugi almenn­ings á hluta­bréfa­mark­að­inn, yfir­töku­á­hrif og sam­runar haft mikil áhrif á mark­að­inn. Þetta skrifar Egg­ert Aðal­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Kviku egina­stýr­ingu hf., í grein sinni sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ing­ar.  

Skuld­settir fjár­festar hurfu

Í grein­inni fer Egg­ert yfir þróun hluta­bréfa­mark­að­ar­ins á þessu ári, en hann hefur sveifl­ast nokkuð frá því að kór­ónu­veiran breiddi hratt úr sér í vor. Í kringum fyrstu bylgj­una í mars lækk­aði úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar um tæpan fimmt­ung, en sam­kvæmt Egg­erti breytti sú lækkun sam­setn­ingu fjár­festa á hluta­bréfa­mark­aðnum til muna. með lækk­andi verði hafi æ fleiri skuld­settir fjár­festar selt út hlut sinn, en á kaup­hlið­inni voru óskuld­settir lang­tíma­fjár­fest­ar, og þá sér í lagi líf­eyr­is­sjóð­ir, sem juku við hlut sinn á mark­aðn­um.

 Lægri vextir ýta undir áhættu­sækni

Egg­ert bætir einnig við að vaxta­lækk­an­irnar sem Seðla­bank­inn réðst í í vor hafi haft mikil áhrif á hluta­bréfa­mark­að­inn. Með lægri vöxtum bötn­uðu rekstr­ar­horfur fyr­ir­tækja þar sem fjár­magns­kostn­aður þeirra minnk­aði, en sam­kvæmt Egg­erti er líka ljóst að lækk­unin ýtti undir áhættu­sækni fjár­festa, þar sem ávöxt­unin á öðrum fjár­fest­inga­val­kostum hafði lækk­að. 

Auglýsing

 „Lækkun lang­tíma­vaxta leiðir til lægri ávöxt­un­ar­kröfu sem fjár­festar gera til hluta­bréfa og eykur virði frjáls sjóð­streym­is. Þá er sparn­aður heim­ila í sögu­legu hámarki og ljóst að yfir 3% nei­kvæðir raun­vextir bíta hressi­lega í. Er því ekki nema von að inn­láns­eig­and­inn leiti í áhættu­sam­ari fjár­fest­ing­ar­kosti sem hann telur að skili betri ávöxt­un,“ skrifar Egg­ert í grein­inni sinni.

 Út­boð Icelandair og  vonir um bólu­efni hækka verð

Sam­kvæmt Egg­erti olli hluta­fjár­út­boð Icelandair Group í sept­em­ber straum­hvörfum hvað varðar beina þátt­töku almenn­ings á hluta­bréfa­mark­aði. Hlut­höfum félags­ins fjölg­aði úr rúmum 3 þús­und í 11 þús­und, en annar eins fjöldi hefur ekki sést hjá íslensku hluta­fé­lagi eftir hrun­ið. 

 Til við­bótar við fjölda nýrra fjár­festa virð­ist sem bjart­sýni þeirra hafi auk­ist í kjöl­far jákvæðra frétta um bólu­efni gegn COVID-19 á síð­ustu vik­um. Hluta­bréf í Icelandair hækk­uðu til að mynda um nær helm­ing á nokkrum dögum eftir að fyrstu fréttir þess efnis bárust, en fimm félög í Kaup­höll­inni hækk­uðu um meira en 10 pró­sent í októ­ber. 

Þrýst­ingur lík­legur í fram­tíð­inni

Egg­ert nefnir einnig að ýmis­legt bendi til þess að jákvæður þrýst­ingur verði á hluta­bréfa­mark­aðnum á næst­unni, til dæmis sé lík­legt að vextir muni hald­ast lágir í ein­hvern tíma, auk þess sem ólík­legt er að líf­eyr­is­sjóðir farið með stórar fjár­hæðir út úr landi, þar sem hlut­fall erlendra eigna þeirra er komið nær hámarki. 

Einnig segir Egg­ert að ekki sé ólík­legt að félögum geti fækkað á inn­lendum mark­aði, í kjöl­far sam­runa og afskrán­inga. Kjarn­inn greindi nýlega frá fyr­ir­hug­uðum sam­runa Kviku og T M, en fast­eigna­fé­lagið Heima­vellir voru einnig teknir af mark­aði í ár, auk þess sem hópur fjár­festa hefur gert yfir­tökutil­boð í Skelj­ungi. Sam­kvæmt Egg­erti hefur sá hópur í hyggju að taka félagið af mark­aði. Þessir þætt­ir, að mati Egg­erts, gætu hæg­lega leitt til eigna­bólu og segir hann því þetta geta verið ákjós­an­legar aðstæður fyrir önnur fyr­ir­tæki að skrá sig á mark­að, til að mynda Lands­bank­ann, sem er nú í eigu rík­is­ins.



Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent