Alls hafa 78 byggingaraðilar skráð sig í samstarf við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) um að byggja íbúðir sem fjármagna má með hlutdeildarláni. Samtals hyggjast þessir aðilar byggja 2.333 íbúðir, en þar af er ríflega helmingurinn á höfuðborgarsvæðinu.
Hlutdeildarlán er nýtt úrræði fyrir tekju- og eignaminni einstaklinga, en því er ætlað að hjálpa fyrstu kaupendum undir ákveðnum tekjumörkum sem eiga ekki fyrir útborgun í íbúð en hafa aftur á móti greiðslugetu til að greiða af húsnæðisláni. Þau eru eingöngu veitt til kaupa á nýjum, hagkvæmum íbúðum sem samþykktar eru af HMS og þurfa þær að uppfylla skilyrði hvað varðar stærð og verð.
Í tilkynningu frá HMS eru rifjuð upp þau sjónarmið sem voru viðruð í aðdraganda samþykktar frumvarps um hlutdeildarlán að kröfur um hámarksverð gætu orðið til þess að lítið yrði byggt af íbúðum „en þær áhyggjur virðast hafa verið óþarfar“.
Lög um hlutdeildarlán tóku gildi 1. nóvember og er gert ráð fyrir að fyrstu lánunum verði úthlutað til einstaklinga fljótlega.
Af þeim 2.333 íbúðum sem byggingaraðilarnir hyggjast reisa eru 1.368 á höfuðborgarsvæðinu og 965 á landsbyggðinni, flestar á Suðurnesjum og Suðurlandi. Nú þegar er búið að gefa út samþykki fyrir 468 íbúðum sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, af þeim eru 200 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og 268 á landsbyggðinni, flestar í Reykjanesbæ og Akureyri.
Hlutdeildarlánin munu að mati HMS stuðla að auknu framboði íbúða sem henta tekjulægri hópum, ýta undir að sveitarfélög bjóði ódýrari lóðir og hvetja til nýsköpunar í byggingaraðferðum. „Mikil eftirspurn er eftir minni íbúðum en byggingaraðilar hafa hingað til séð sér meiri hag í byggingu stærri dýrari íbúða eða minni lúxusíbúða,“ segir í tilkynningu HMS. Tilkoma hlutdeildarlánanna mun verða þeim hvatning til að byggja meira fyrir þann hóp sem á rétt á nýju lánunum.
HMS gerir ráð fyrir að veita lán til kaupa á um 500 íbúðum á næstu 12 mánuðum, en lánunum verður úthlutað sex sinnum á ári.
Umsóknarfrestur fyrir síðustu úthlutun ársins 2020 rennur út þann 13. desember næstkomandi.