78 aðilar vilja byggja 2.333 íbúðir

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun segir áhyggjur af því að kröfur hlutdeildarlána kæmu í veg fyrir að sótt yrði um þau og hagkvæmt húsnæði byggt, virðast hafa verið óþarfar.

Af þeim 2.333 íbúðum sem byggingaraðilarnir hyggjast reisa eru 1.368 á höfuðborgarsvæðinu og 965 á landsbyggðinni.
Af þeim 2.333 íbúðum sem byggingaraðilarnir hyggjast reisa eru 1.368 á höfuðborgarsvæðinu og 965 á landsbyggðinni.
Auglýsing

Alls hafa 78 bygg­ing­ar­að­ilar skráð sig í sam­starf við Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun (HMS) um að byggja íbúðir sem fjár­magna má með hlut­deild­ar­láni. Sam­tals hyggj­ast þessir aðilar byggja 2.333 íbúð­ir, en þar af er ríf­lega helm­ing­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. 

Hlut­deild­ar­lán er nýtt úrræði fyrir tekju- og eigna­minni ein­stak­linga, en því er ætlað að hjálpa fyrstu kaup­endum undir ákveðnum tekju­mörkum sem eiga ekki fyrir útborgun í íbúð en hafa aftur á móti greiðslu­getu til að greiða af hús­næð­is­láni. Þau eru ein­göngu veitt til kaupa á nýj­um, hag­kvæmum íbúðum sem sam­þykktar eru af HMS og þurfa þær að upp­fylla skil­yrði hvað varðar stærð og verð.

Í til­kynn­ingu frá HMS eru rifjuð upp þau sjón­ar­mið sem voru viðruð í aðdrag­anda sam­þykktar frum­varps um hlut­deild­ar­lán að kröfur um hámarks­verð gætu orðið til þess að lítið yrði byggt af íbúðum „en þær áhyggjur virð­ast hafa verið óþarfar“. 

Auglýsing

Lög um hlut­deild­ar­lán tóku gildi 1. nóv­em­ber og er gert ráð fyrir að fyrstu lán­unum verði úthlutað til ein­stak­linga fljót­lega.

Af þeim 2.333 íbúðum sem bygg­ing­ar­að­il­arnir hyggj­ast reisa eru 1.368 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 965 á lands­byggð­inni, flestar á Suð­ur­nesjum og Suð­ur­landi. Nú þegar er búið að gefa út sam­þykki fyrir 468 íbúðum sem upp­fylla skil­yrði hlut­deild­ar­lána, af þeim eru 200 íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 268 á lands­byggð­inni, flestar í Reykja­nesbæ og Akur­eyri.

Hlut­deild­ar­lánin munu að mati HMS stuðla að auknu fram­boði íbúða sem henta tekju­lægri hóp­um, ýta undir að sveit­ar­fé­lög bjóði ódýr­ari lóðir og hvetja til nýsköp­unar í bygg­ing­ar­að­ferð­um. „Mikil eft­ir­spurn er eftir minni íbúðum en bygg­ing­ar­að­ilar hafa hingað til séð sér meiri hag í bygg­ingu stærri dýr­ari íbúða eða minni lúxus­í­búða,“ segir í til­kynn­ingu HMS. Til­koma hlut­deild­ar­lán­anna mun verða þeim hvatn­ing til að byggja meira fyrir þann hóp sem á rétt á nýju lán­un­um.

HMS gerir ráð fyrir að veita lán til kaupa á um 500 íbúðum á næstu 12 mán­uð­um, en lán­unum verður úthlutað sex sinnum á ári.

Umsókn­ar­frestur fyrir síð­ustu úthlutun árs­ins 2020 rennur út þann 13. des­em­ber næst­kom­andi.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent