„Við höfum öll staðið okkur frábærlega fram til þessa, sýnt ótrúlegt úthald og þolinmæði. Nú þurfum við klára þessa vegferð og leggja okkur sérstaklega fram og þannig tryggja að smit verði áfram í lágmarki þar til okkur hefur tekist að verja samfélagið með bólusetningum.“
Þetta skrifar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á Facebook-síðu sína í dag.
Í færslunni bendir hún á að í dag hafi bólusetningar hafist við COVID-19 í Bretlandi og segir hún að ljóst sé að bólusetning Íslendinga muni hefjast í upphafi nýs árs. Þá var einnig birt í dag niðurstaða skoðanakönnunar Maskínu sem sýnir að 92 prósent landsmanna ætla í bólusetningu og telur forsætisráðherra það vera gríðarlega mikilvægt vegna þess að því fleiri sem láta bólusetja sig því betur og hraðar verði Íslendingar varðir fyrir veirunni.
„Þetta eru tímamót í baráttunni gegn veirunni og við getum óhikað litið með bjartsýni til nýs árs. Samfélagið okkar mun þá byrja að færast smátt og smátt í eðlilegt horf. Við getum farið að njóta samvista óhindrað og efnahagslífið getur spyrnt kröftuglega við fótum og atvinnuleysi byrjað að ganga niður,“ skrifar hún.
Tilkynnt var í dag að nýjar sóttvarnareglur munu taka gildi á fimmtudaginn næstkomandi. Börn fá meiri tilslakanir og sundlaugar mega opna á ný. Íþróttaæfingar afreksfólks fá að hefjast, stórar verslanir mega taka á móti allt að 100 manns og veitingastaðir mega hafa opið til klukkan 22. Sóttvarnaraðgerðirnar munu gilda til 12. janúar næstkomandi.
Katrín segir að þetta verði ekki síðustu aðgerðirnar í baráttunni en nú þegar bólusetningar eru í augsýn sé ljóst að lokaspretturinn sé að hefjast.