Miðflokkurinn ekki mælst með minna fylgi í tvö ár – Frjálslynda andstaðan á flugi

Píratar, Samfylking og Viðreisn mælast samanlagt með meira fylgi en ríkisstjórnarflokkarnir og hafa bætt við sig rúmlega 50 prósent fylgi það sem af er kjörtímabili. Allir stjórnarflokkarnir mælast undir kjörfylgi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Auglýsing

Mið­flokk­ur­inn yrði lík­ast til minnst flokk­ur­inn sem næði manni inn á Alþingi ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt nýrri könnun Zenter fyrir Frétta­blaðið. Flokk­ur­inn mælist nú með 6,7 pró­sent fylgi sem er það minnsta sem hann hefur haft í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins frá því að Klaust­ur­málið svo­kall­aða, þar sem þing­menn hans voru í aðal­hlut­verk­um, kom upp í lok árs 2018. Þá mæld­ist flokk­ur­inn með 4,3 pró­sent fylg­i. 

Enn fremur mælist fylgi Mið­flokks­ins 4,2 pró­sentu­stigum undir því sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu þing­kosn­ing­um, haustið 2017. Hann hefur því tapað rúm­lega 38 pró­sent af fylgi sínu það sem af er kjör­tíma­bili.

Fjórð­ungur af fylg­inu farið

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast allir undir kjör­fylgi í könnun Zent­er. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði áfram stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði nú en stuðn­ingur við hann mælist 22,9 pró­sent. Það 2,4 pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum og versta nið­ur­staða flokks­ins frá upp­hafi.

Auglýsing
Vinstri græn mæl­ast með 10,2 pró­sent fylgi, sem er 6,7 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. Það myndi þýða að 39 pró­sent þeirra kjós­enda sem kusu flokk­inn síð­ast myndu ekki gera það í dag. Ef könnun Zenter yrði nið­ur­staða kosn­inga þá væri um að ræða rýr­ustu upp­skeru Vinstri grænna í kosn­ingum frá árinu 2003.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn yrði næst minnstur þeirra sjö flokka sem næðu örugg­lega inn á þing sam­kvæmt könn­un­inni. Hann mælist með 7,3 pró­sent fylgi, 3,4 pró­sentu­stigum minna en haustið 2017, sem yrði versta kosn­ing flokks­ins frá upp­hafi. 

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist 40,4 pró­sent. Þeir fengu 52,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum og hafa því tapað tæpum fjórð­ungi fylgi síns.

Frjáls­lyndu and­stöðu­flokk­arnir stærri en stjórnin

Þeir þrír flokkar sem næðu inn á þing sam­kvæmt könn­un­inni, og eru ónefndir hér, eru Pírat­ar, Sam­fylk­ing og Við­reisn. Sam­tals mælist fylgi þeirra í könnun Zenter 42,8 pró­sent. Þessir þrír flokkar fengu 28 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ing­unum 2017 og því hafa þeir bætt við sig 14,8 pró­sentu­stig­um, 53 pró­sent fylgi, á meðan að allir aðrir flokkar sem sitja á þingi hafa tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­i. 

Mest hafa Píratar bætt við sig. Þeir mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins í könnun Zenter með 17 pró­sent fylgi. Það er 7,8 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk haustið 2017.

Sam­fylk­ingin mælist með 15,6 pró­sent fylgi og myndi sam­kvæmt þessu bæta við sig 3,5 pró­sentu­stig­um. Við­reisn myndi fá svip­aða upp­skeru og flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2016 ef kosið yrði nú, en umtals­vert betri en það sem kom upp úr kjör­köss­unum 2017 þegar 6,7 pró­sent lands­manna kusu flokk­inn. Í dag segj­ast 10,2 pró­sent styðja hann. 

Flokkur fólks­ins við það að kom­ast inn

Flokkur fólks­ins er sá flokkur sem er þegar með þing­menn kjörna sem er lík­leg­astur til að detta af þingi sam­kvæmt könn­un­inni. Fylgi hans mælist 4,7 pró­sent og ef það yrði nið­ur­staðan alls staðar á land­inu myndi flokk­ur­inn lík­leg­ast ekki ná inn. Það verður þó að hafa í huga, sér­stak­lega ef tekið er til­lit til eðli­legra skekkju­marka, að Flokkur fólks­ins er fjarri því að vera úr leik miðað við þessa fylgiskönnun og lítið þyrfti að ger­ast til að hann næði inn. Flokkur fólks­ins fékk 6,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum og er því að mæl­ast 2,2 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi í könnun Zent­er.

Níundi flokk­ur­inn sem er mældur í könnun Zenter er Sós­í­alista­flokkur Íslands. Hann mælist með 3,3 pró­sent fylgi og er nokkuð frá því að ná inn manni. Vert er þó að taka fram að flokk­ur­inn hefur ekki kynnt lista sína vegna kom­andi kosn­inga, en hann hefur aldrei áður tekið þátt í þing­kosn­ing­um. Kjós­endur hafa því fá and­lit til að tengja við flokk­inn enn sem komið er. 

Könn­unin var send á könn­un­ar­hóp Zenter sem fékk að svara henni frá 11. til 19. des­em­ber 2020. Í þeim hópi voru 2.500 ein­stak­lingar átján ára og eldri og svör voru vegin eftir kyni, aldri og búsetu. Svar­hlut­fall var 52,8 pró­sent. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent