Nýr þjónustusamningur mennta- og menningarmálaráðherra við Ríkisútvarpið var undirritaður í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Í henni segir að aukin áhersla á fræðsluhlutverk Ríkisútvarpsins og rækt við íslenska tungu sé meðal lykilatriða í samningnum. Lögð verði áhersla á þjónustu við börn og ungmenni, meðal annars til að efla lýðræðisvitund, auka miðla- og upplýsingalæsi og hvetja til þátttöku í dagskrárgerð og öðru skapandi starfi.
„Ríkisútvarpið mun verja 12 prósent af innheimtu útvarpsgjaldi til meðframleiðslu og kaupa á íslensku efni af sjálfstæðum framleiðendum, áhersla verður lögð á varðveislu og miðlun efnis úr safni Ríkisútvarpsins, þjónustu við eldri borgara og þátttöku í þróun máltæknilausna, þar sem markmiðið er að íslenska verði nothæf og nýtt í tölvum, tækjum og sjálfvirkum lausnum, til dæmis textun á töluðu máli,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að í samningnum séu skýrð ýmis atriði sem hafi verið óljósari í fyrri þjónustusamningum, til dæmis skilgreining á sjálfstæðum framleiðendum, réttur Ríkisútvarpsins til eignarhlutar í samstarfsverkefnum í samræmi við fjárframlög og greiðslur til listamanna í samstarfsverkefnum. „Annars skal við framkvæmd markmiða í þjónustusamningi horft til framboðs á efni og áherslna í dagskrá annarra fjölmiðla og gætt að samkeppnissjónarmiðum, þar sem RÚV sinnir skyldum sem aðrir fjölmiðlar uppfylla ekki á markaðslegum forsendum.“
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir í tilkynningunni að Ríkisútvarpið gegni margþættu menningar- og félagslegu hlutverki, sem það hafi sinnt með sóma í 90 ár. Sérstök áhersla á fræðslu og menntun sé mjög í takt við þá áherslu sem verið hafi áberandi í dagskrá þess, til að mynda þegar skólastarf var verulega takmarkað vegna COVID-19. Gerð fræðsluefnis um íslenska tungu sé sérstakt fagnaðarefni, sem og efni um tækni og vísindi.
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að þau séu meðvituð um skyldur þeirra gagnvart almenningi og þá sérstöðu sem þau njóti. „Ríkisútvarpið mun áfram sinna sínum meginhlutverkum af metnaði og í þessum þjónustusamningi eru lagðar línur sem eru í góðum takti við væntingar og óskir fólksins í landinu og stefnu Ríkisútvarpsins. Í samningnum er lagður góður grunnur undir þá vinnu sem er framundan á næsta ári við stefnumótun til næstu ára. Við hlökkum svo sannarlega til að halda áfram að fræða, upplýsa og skemmta fólki eins og Ríkisútvarpið hefur gert í 90 ár,“ segir hann.