Bandarískir fjölmiðlar segja frá því að manneskja hafi verið skotin inni í húsakynnum Bandaríkjaþings í Washington DC eftir að mótmælendur brutu sér leið framhjá öryggisvörðum og lögreglu og inn í þingið.
Samkvæmt frétt Washington Post sáu vitni konu borna út úr þinghúsinu af sjúkraflutningamönnum, þakta blóði á búk og höfði. „Hvít kona, skotin í öxlina,“ er haft eftir öryggisverði sem hleypti sjúkraflutningamönnum inn í húsið.
Þegar konan var færð inn í sjúkrabíl umkringdu mótmælendur sjúkrabílinn og hrópuðu „Morðingjar!“ áður en lögregla stuggaði þeim í burtu svo sjúkrabíllinn kæmist leiðar sinnar.
Þjóðvarðliðið í Washington DC kallað út
CNN segir frá því að nokkur fjöldi lögreglumanna hafi særst í átökum við mótmælendur og að minnsta kosti einn hafi þurft að leita á sjúkrahús.
Búið er að kalla út þjóðvarðliðið í höfuðborg Bandaríkjanna til þess að reyna að koma böndum á óeirðirnar sem nú standa yfir, innan og utan þinghússins.