Sérstakur transskattur „ósanngjarn og óréttlátur“

Þingmaður gagnrýndi á þingi í dag gjald sem Þjóðskrá rukkar fólk sem vill breyta skráningu á kyni sínu. „Þingið þarf að viðurkenna að þarna varð okkur á í messunni, leiðrétta mistökin og afnema transskattinn strax.“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka.
Auglýsing

„Þann 5. jan­úar hrísl­að­ist gleði um kynsegin sam­fé­lagið – og henni deildum við sem stöndum með þeim hópi – þegar upp­skera ára­langrar bar­áttu birt­ist á ofurein­faldan hátt: „kynseg­in/ann­að“ varð val­mögu­leiki í felli­val­mynd hjá Þjóð­skrá. Á sama tíma kom flatt upp á fólk sem breytti skrán­ingu að fyrir það þurfti að greiða 9.000 krónur í gjald til Þjóð­skrár.“

Þetta kom fram í máli Andr­ésar Inga Jóns­son­ar, þing­manns utan flokka, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Í ræðu sinni sagði hann að þetta gjald hefði einnig komið flatt upp á hann „en við nán­ari eft­ir­grennslan leynd­ist ástæðan nán­ast neð­an­máls, í 4. tölu­lið 18. gr. laga um kyn­rænt sjálf­ræði var breyt­ing á lögum um auka­tekjur rík­is­sjóðs sem hafði þessar afleið­ing­ar“.

Auglýsing

Varpar skugga á þá „stór­kost­legu rétt­ar­bót sem felst í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði“

Andrés Ingi full­yrti að það hefði ekki verið ætlun þeirra á þingi að koma á sér­stökum trans­skatti um leið og „við náðum fram þess­ari rétt­ar­bót“.

„Bæði er ekki sjálf­sagt að trans fólk hafi efni á að borga slíkt gjald en þar að auki þá þjónar ekki almanna­hags­munum að vera með fjár­hags­legan þrösk­uld fyrir því að nafn og kyn séu rétt í þjóð­skrá.

Sér­stakur trans­skattur er ósann­gjarn og órétt­lát­ur. Hann varpar skugga á þá stór­kost­legu rétt­ar­bót sem felst í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði. Þingið þarf að við­ur­kenna að þarna varð okkur á í mess­unni, leið­rétta mis­tökin og afnema trans­skatt­inn strax,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent