Tólf manns gefa kost á sér í forvali um fimm efstu sætin í Norðausturkjördæmi fyrir Vinstri græna, að því er fram kemur í tilkynningu frá flokknum.
Forvalið er rafrænt og verður haldið 13. til 15. febrúar næstkomandi. Á fundi kjörstjórnar með frambjóðendum í gærkvöld var ákveðið að halda þrjá málefnafundi með þeim sem eru í framboði.
Auglýsing
Þau 12 sem bjóða sig fram á lista VG í forvalinu eru:
- Angantýr Ásgeirsson, sálfræðinemi, Akureyri.
- Ásrún Ýr Gestsdóttir, nemi, Akureyri.
- Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Alþingismaður, Ólafsfirði, 1. sæti.
- Cecil Haraldsson, fyrrverandi sóknarprestur, Seyðisfirði, 4.-5. sæti.
- Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, Akureyri.
- Helga Margrét Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur og meistaranemi, Eyjafjarðarsveit.
- Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari, Neskaupsstað. 1 – 2 sæti.
- Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, Akureyri, 3. sæti.
- Jódís Skúladóttir, lögfræðingur, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Múlaþingi 2. sæti.
- Kári Gautason, framkvæmdastjóri í fæðingarorlofi, Reykjavík, 2. sæti.
- Óli Halldórsson, forstöðumaður, Húsavík, 1. sæti .
- Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson, bóndi, Þingeyjarsveit.