Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, telur að réttast væri að leggja auglýsingastyrki til stjórnmálaflokka af hið snarasta, samhliða því að rannsaka þær greiðslur sem Sjálftstæðisflokkurinn í Kópavogi hefur fengið úr bæjarsjóði undanfarin ár. Frá þessu greinir hún á Facebooksíðu sinni í pistli undir heitinu „Sjálftaka, spillingarmenning og leyndarhyggja í Kópavogi“.
Útskýrir hún mál sitt og bendir á að Kópavogsbær kaupi reglulega auglýsingar í Voga, tímariti Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hún hafi komist að þessu fyrir tilviljun og spurst fyrir um hvaða reglur giltu um styrki til stjórnmálaflokka af þessum toga.
Fékk hún þau svör að viðmið um auglýsingar til stjórnmálaflokka hefðu verið ákveðnar á fundi kjörinna fulltrúa árið 2011 og miðað hefði verið við 150.000 krónur á ári. Hún segir að þessi samþykkt sé þó hvergi skráð í opinberum gögnum og þeir flokkar sem hafa komið nýir inn í bæjarstjórn eftir að þetta var samþykkt hafi ekki verið upplýstir um styrkina.
Styrkir yfir viðmiðunarmörkum 2014, 2016 og 2017
Í kjölfarið spurðist Sigurbjörg Erla fyrir um upphæðir þessara styrkja síðustu tvö kjörtímabil. „Nú er komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hlotið langhæsta auglýsingastyrkinn á tímabilinu. Ekki nóg með það, heldur hefur Sjálfstæðisflokkurinn líka hlotið umtalsverðar upphæðir greiddar umfram téð viðmið, en fyrir alþingiskosningarnar 2016 og 2017 keypti Kópavogsbær viðbótarauglýsingar í Voga, tímarit Sjálfstæðismanna.“
Í umsögn lögfræðings á stjórnsýslusviði Kópavogsbæjar sem Kjarninn hefur undir höndum má finna töflu með umræddum skyrkjum.
Í ofangreindri töflu má sjá kaup á auglýsingum Kópavogsbæjar í útgáfum á vegum stjórnmálaflokkanna. Í umsögninni segir að almennt sé um hefðbundna auglýsingu á opnunartíma sundlauganna að ræða á heilsíðu. Á árunum 2016 og 2017 hafi verið keyptar viðbótarauglýsingar í Voga vegna alþingiskosninga og séu kjörstaðir auglýstir í þeim tilvikum.
Til þess fallið að fela styrkveitingar til stjórnmálaflokka
Sigurbjörg Erla segir í pistli sínum að enga stoð sé að finna fyrir þessu í samþykktum, engar þessara greiðslna hafi komið fyrir bæjarráð og þær finnist hvergi í opnu bókhaldi bæjarins.
„Þetta fyrirkomulag er til þess fallið að fela styrkveitingar til stjórnmálaflokka og gefa ákveðnum flokkum forskot að hærri styrkjum en öðrum. Fyrirkomulagið er ógagnsætt, hvergi birt og ekki kynnt öllum flokkum. Nú er það auk þess orðið ljóst að flokkurinn sem er við stjórn hefur notið þess mest og fengið hæstu styrkina,“ skrifar hún.