Bjarni býst ekki við að Bankasýslan mæli með arðgreiðslum

Fjármálaráðherra þykir það ekki líklegt að Bankasýsla ríkisins mæli með því að Íslandsbanki greiði út arð áður en ríkið selji eignarhlut sinn í því í sumar.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Auglýsing

Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra þykir það ekki lík­legt að Banka­sýsla rík­is­ins leggi til að Íslands­banki greiði út arð áður en 25 til 35 pró­senta eign­ar­hlutur hans verði skráður á hluta­bréfa­mark­að. Hann vill líka losa enn frekar um eign­ar­hald bank­ans á næsta ári, gangi þessi sala vel. 

Þetta sagði Bjarni á opnum hádeg­is­fundi á vegum efna­hags- og við­skipta­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær, þar sem hann fór yfir fyr­ir­hug­aða sölu rík­is­ins á hluta eignar í Íslands­banka og svar­aði spurn­ingum fund­ar­gesta. 

Vill losa enn frekar um eign­ar­hald á næsta ári

Á fund­inum sagð­ist Bjarni meta það svo að ríkið ætti jafnt og þétt að losa um eign­ar­hlut sinn í Íslands­banka og benti á að stefnt væri að fullri einka­væð­ingu bank­ans til langs tíma í eig­enda­stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þó segir hann að frek­ari ákvarð­anir um sölu eign­ar­hluta verði ekki teknar af þess­ari rík­is­stjórn, þar sem eitt ár þurfi að líða eftir að salan eigi sér stað þangað til enn frek­ari sala geti haf­ist. 

Auglýsing

Þó segir Bjarni að það ætti strax að koma til skoð­unar á næsta ári að losa enn frekar um eign­ar­hald rík­is­ins á bank­an­um, gangi fyr­ir­huguð sala upp í ár. 

Sterk eig­in­fjár­staða álit­legri í augum fjár­festa

Bjarni minnt­ist einnig á mögu­lega arð­greiðslu Íslands­banka til rík­is­ins fyrir skrán­ingu á mark­að, þar sem mörgum þyki mikið umfram eigið fé vera í bönk­un­um. Sam­kvæmt þaki sem Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hefur sett á arð­greiðslur bank­anna fram á haustið vegna óvissunnar í efna­hags­líf­inu væri í mesta lagi mögu­leiki á arð­greiðslu upp á 3 til fjóra millj­arða króna fram í haust. 

Bjarni taldi það ekki lík­legt að Banka­sýsla rík­is­ins myndi leggja til að slíkar arð­greiðslur myndu eiga sér stað fyrir skrán­ingu bank­ans á hluta­bréfa­mark­aði. „Ég held að við megum frekar gera ráð fyrir því að vel fjár­magn­aður banki með sterka lausa­fjár­stöðu sé lík­legri til að laða að sér fjár­festa heldur en banki sem hefur tæmt úr sjóðum sín­um,“ bætti Bjarni við á fund­in­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent