Fimm til sjö þúsund manns í óleyfisíbúðum

Samkvæmt nýrri skýrslu eru engar vísbendingar um að óleyfisbúseta hafi minnkað á síðustu þremur árum. Allt að sjö þúsund manns gætu búið í atvinnuhúsnæði á landinu öllu, þar af fjögur þúsund á höfuðborgarsvæðinu.

Drífa Snædal, forseti ASÍ
Drífa Snædal, forseti ASÍ
Auglýsing

Um 5-7 þús­und manns gætu búið í hús­næði sem skipu­lagt er undir atvinnu­starf­semi, sam­kvæmt nýrri skýrslu vinnu­hóps um umbætur á hús­næð­is­mark­aði sem Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) vekur athygli á í dag. Há leiga og skortur á leigu­hús­næði er talin vera veiga­mesta skýr­ing­in, en hóp­ur­inn telur að starfs­manna­leigur og atvinnu­rek­endur komi starfs­mönnum sínum fyrir í óleyf­is­bú­set­u. 

Skýrslan var unnin af vinnu­hópi sem skip­aður var í tengslum við gerð Lífs­kjara­samn­ing­anna til að safna upp­lýs­ingum um fjölda óskráðra íbúða og leiðir til þess að fá eig­endur óskráðra íbúða til þess að skrá þær opin­ber­lega.  Í vinnu­hópnum starfa full­trúar frá Slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Þjóð­skrá, Efl­ingu og Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun (HMS).

Sam­kvæmt vinnu­hópnum skapar óleyf­is­bú­seta ákveðna hættu þegar vá steðjar að, líkt og elds­voði eða nátt­úru­ham­far­ir, og gerir við­bragðs­að­ilum erfitt fyrir í björg­un­ar­störf­um. 

Auglýsing

Engin merki um sam­drátt

Skýrslu­höf­undar minn­ast á könnun sem Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fram­kvæmdi á árinu 2017, en þar komu fram skýrar vís­bend­ingar um tölu­verða aukn­ingu á óleyf­is­bú­setu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þá var áætlað að í kringum 3.500 til 4 þús­und manns byggju við slíkar aðstæð­ur. Slökkvi­liðið mat það svo að ekki séu vís­bend­ingar um að slík, búseta hafi dreg­ist saman á þessum árum, en út frá því mati, auk talna um atvinnu­hús­næði yfir landið allt, mat vinnu­hóp­ur­inn fjölda íbúa í óleyf­is­hús­næði yfir allt land­ið.

Sam­kvæmt mati vinnu­hóps­ins mætti búast við að 5.290 til 6.800 manns búa í óleyf­is­í­búðum á land­inu öllu. Um 60 pró­sent þeirra eru talin búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en einnig er búist við tölu­verðum fjölda í öðrum lands­hlut­um, ef miðað er við mann­fjölda. Talið er að um 500-700 manns á Suð­ur­landi og 300-700 manns á Suð­ur­nesjum búi í óleyf­is­í­búð­um.

Eft­ir­spurn gæti auk­ist

Sam­kvæmt skýrsl­unni er mikil upp­söfnuð íbúða­þörf á land­inu, en byggja þarf þrjú þús­und íbúðir á hverju ári til að vinna hana upp á næstu tíu árum. Vinnu­hóp­ur­inn telur að upp­söfnuð þörf fyrir íbúðir muni halda áfram að aukast á næstu árum ef ekki verður mik­ill brott­flutn­ingur frá land­inu, en þá er talið lík­legt að eft­ir­spurn eftir ósam­þykktu hús­næði haldi áfram að aukast. 

Vinnu­hóp­ur­inn bendir á að ástæður á bak við óleyf­is­bú­setu geti verið marg­þætt­ar, en skortur á leigu­hús­næði og há leiga sé lík­ast til veiga­mesta skýr­ing­in. Þá séu einnig dæmi um að starfs­manna­leigur og atvinnu­rek­endur komi starfs­mönnum sínum fyrir í óleyf­is­bú­setu sem hafa jafn­vel ekki raun­veru­legt val um búsetu. Einnig spili það inn í að hluti erlends verka­fólks sem dvelst tíma­bundið á land­inu vegna vinnu kjósi hrein­lega að búa tíma­bundið í eins ódýru hús­næði og mögu­legt er.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent