Rúmlega þriðjungur allra viðskipta í Kauphöll í janúar var með bréf í Icelandair Group

Hlutabréfaviðskiptum í Kauphöll Ísland fjölgaði um 64 prósent milli janúarmánaðar og sama mánaðar í fyrra. Um þriðjungur af veltunni var vegna viðskipta með bréf í Arion banka en langflest viðskipti voru með bréf í Icelandair Group.

icelandair
Auglýsing

Við­skiptum með hluta­bréf í Kaup­höll Íslands í jan­úar fjölg­aði um 64 pró­sent frá sama mán­uði árið áður. Þeim fækk­aði hins vegar um 34 pró­sent frá des­em­ber 2020. Í jan­úar voru lang­flest við­skipti með bréf í Icelandair Group, eða 2.246 tals­ins. Það þýðir að 36 pró­sent allra þeirra 6.297 við­skipta sem voru með hluta­bréf í Kaup­höll­inni í síð­asta mán­uði voru með bréf í flug­fé­lag­inu, sem er það skráða félag sem er með lang­flesta hlut­hafa. Þá voru þrisvar sinnum fleiri við­skipti með bréf í Icelandair en í því félagi sem kom þar á eftir í fjölda við­skipta, en það var Arion banki með 705 tals­ins.

Upp­hæðin sem átt var hluta­bréfa­við­skipti fyrir í jan­úar nam 83,9 millj­örðum króna, eða um 4,2 millj­örðum króna á dag að með­al­tali. Það er 6,8 pró­sent hækkun frá des­em­ber­mán­uði og 29,5 pró­sent hækkun frá jan­ú­ar­mán­uði 2020. Mest við­skipti í mán­uð­inum voru hins vegar með bréf Arion banka alls, 28,3 millj­arðar króna, eða um 34 pró­sent heild­ar­við­skipta. Til sam­an­burðar voru gerð við­skipti með bréf í Icelandair Group fyrir 4,7 millj­arða króna. 

Auglýsing
Stóran hluta veltunnar með bréf í Arion banka má rekja til þess að stærsti hlut­hafi bank­ans, banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Taconic Capital, seldi um sjö pró­senta hlut í bank­anum fyrir meira en ell­efu millj­arða króna í síð­ustu viku. Taconic á eftir söl­una 16,28 pró­sent hlut í Arion banka.

Úrvals­vísi­talan hækk­aði um 3,5 pró­sent milli mán­aða og heild­ar­mark­aðsvirði þeirra 23 félaga sem skráð eru á Aðal­markað og First North var 1.662,5 millj­arðar króna í lok síð­ustu viku. Það hækkað um 59,5 millj­arða króna í síð­asta mán­uð­i. 

Þetta kemur fram í við­skipta­yf­ir­liti Nas­daq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina, fyrir jan­ú­ar­mánuð sem birt var í gær.

Mikil aukn­ing í fyrra

Þessi þróun er áfram­hald af því sem átti sér stað á síð­ari hluta árs­ins 2020. 

Úrvals­vísi­talan, sem er saman sett úr gengi þeirra tíu félaga á mark­aði sem hafa mestan selj­an­leika, hækk­aði um 20,5 pró­sent á árinu 2020, sem er næst mesta hækkun innan árs í árarað­ir. Frá 2012 hefur hún ein­ungis hækkað meira á tveimur árum: árið 2015, þegar hún hækk­aði um 43,4 pró­sent, og árið 2019 þegar hún hækk­aði um 31,4 pró­sent. 

Til við­bótar við þessa hækkun öfl­uðu skráð félög sér 29 millj­arða króna á mark­aði, en þar bar hluta­fjár­út­boð Icelandair Group hæst, enda þriðja stærsta hluta­fjár­út­boð í sögu íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins. Sam­hliða varð tvö­földun á fjölda ein­stak­linga sem áttu bréf skráð á mark­aðn­um, enda þátt­taka almenn­ings í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group mik­il. 

Fjöldi við­skipta jókst mikið á síð­asta ári þegar þau voru 56.337, eða 226 á dag. Það eru 58 pró­sent fleiri við­skipti en voru á árinu 2019 og mesti fjöldi við­skipta á hluta­bréfa­mark­aði í tólf ár, eða frá hru­nár­inu 2008. Íslenskur hluta­bréfa­mark­aður nær þurrk­að­ist út eftir banka­hrunið í októ­ber það ár og því má segja að árið í fyrra sé metár hins end­ur­reista hluta­bréfa­mark­aðar þegar kemur að fjölda við­skipta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent