Minni samdrætti spáð í ESB en á Íslandi

Landsframleiðsla dróst saman um rúm sex prósent í aðildarríkjum ESB í fyrra að meðaltali. Samdrátturinn var minnstur í Norður-Evrópu en mestur í Miðjarðarhafslöndunum.

Nýjustu tölur Eurostat benda til þess að Spánn hafi komið verst allra Evrópulanda úr yfirstandandi kreppu.
Nýjustu tölur Eurostat benda til þess að Spánn hafi komið verst allra Evrópulanda úr yfirstandandi kreppu.
Auglýsing

Sam­dráttur í lands­fram­leiðslu hjá aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins (ES­B)  nam 6,4 pró­sentum í fyrra, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Eurostat í gær. Þetta er minni sam­dráttur en búist er við að hafi átt sér stað hér á landi, en Hag­stofan áætlar að hann hafi numið 7,6 pró­sent­u­m. 

Kreppan minnst í norðri

Í til­kynn­ingu sinni birti Eurostat einnig áætl­aðar tölur um lands­fram­leiðslu í fyrra á meðal 10 aðild­ar­ríkja ESB. Sam­kvæmt þeim var sam­drátt­ur­inn í fyrra minnstur í Norð­ur­-­Evr­ópu en ann­ars staðar í álf­unni, en lands­fram­leiðsla dróst aðeins saman um 1 til 3,5 pró­sent í Lett­landi, Sví­þjóð og Lit­háen.

Auglýsing

Höggið þyngra í Mið-og Suð­ur­-­Evr­ópu 

Sam­drátt­ur­inn var nokkuð meiri í Þýska­landi, Tékk­landi og Aust­ur­ríki, en þar var hann á bil­inu 5,3 til 7,4 pró­sent. Það er þó minni sam­dráttur en búist er við á Íslandi, en sam­kvæmt þjóð­hags­spá Hag­stofu má gera ráð fyrir að lands­fram­leiðsla hér drag­ist saman um 7,6 pró­sent. 

Mynd: Kjarninn. Heimild: Eurostat

Ísland væri frekar í flokki Mið­jarða­haf­s­land­anna, sem koma verst allra aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins úr krepp­unni sem hófst í fyrra. Í Portú­gal, Frakk­landi, Ítalíu og á Spáni dróst lands­fram­leiðsla saman um 7,6 til 11 pró­sent í fyrra, sam­kvæmt tölum Eurostat. Mun­inn á sam­drætt­inum milli landa má sjá á mynd hér að ofan. 

Þriðji fjórð­ung­ur­inn þungur á Íslandi

Ef þróun lands­fram­leiðslu er skoðuð á milli árs­fjórð­unga kemur Ísland ágæt­lega vel út í sam­an­burði við Evr­ópu­sam­bandið á fyrri helm­ingi árs­ins. Hins vegar var sam­drátt­ur­inn rúm­lega tvö­falt dýpri hér­lendis heldur en hjá ESB á þriðja fjórð­ungi árs­ins, þ.e. frá júlí og út sept­em­ber.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Eurostat og Hagstofa.

Mun­ur­inn sést á mynd­inni hér að ofan, þar sem árs­fjórð­ungs­tölur um lands­fram­leiðslu innan ESB eru bornar saman við sam­bæri­legar tölur hér­lendis frá Hag­stofu. Hag­vöxtur á fjórða árs­fjórð­ungi hér­lendis er svo met­inn útfrá þjóð­hags­spá Hag­stofu um hag­vöxt á árinu 2020. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent