Á meðal þeirra sem keyptu hlutabréf í Arion banka af bandaríska vogunarsjóðnum Taconic Capital í síðustu viku eru íslensku fjárfestingafélögin Mótás, Hvalur, Stálskip og Sjávarsýn. Hvalur sem átti fyrir 1,5 prósent hlut, stækkaði sig upp í 2,13 prósent með því að kaupa bréf fyrir um milljarð króna. Mótás, sem nýverið keypti sig inn í Stoðir, stærsta innlenda einkafjárfestinn í Arion banka, keypti 0,6 prósent hlut fyrir tæplega 800 milljónir króna. Fjárfestingafélagið Stálskip, í eigu eigu hjónanna Guðrúnar Lárusdóttur og Ágústs Sigurðssonar og þriggja barna þeirra, keypti fyrir 300 milljónir króna og Sjávarsýn, í eigu Bjarna Ármannssonar, forstjóra Iceland Seafood og fyrrverandi bankastjóra Glitnis, keypti fyrir 200 milljónir króna.
Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Mótás er í eigu Bergþórs Jónssonar og Fritz Hendriks Berndsen. Félagið keypti stærstan hluta þess 12,1 prósenta eignarhluts Landsbankans í fjárfestingafélaginu Stoðum sem seldur var í desember fyrir 3,3 milljarða króna. Það félag keypti bréf fyrir rúman milljarð króna. Stoðir eiga 4,99 prósent hlut í Arion banka og er líka stærsti einstaki eigandi í TM og Kviku banka, sem verið er að sameina í eitt fjármálafyrirtæki. Á meðal annarra fjárfesta sem keyptu hlut í Stoðum af Landsbankanum í desember samhliða Mótás var eignarhaldsfélagið P1211 ehf., sem er í eigu Lárusar Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, og Ágústu Margrétar Ólafsdóttur, eiginkonu hans. Þau keyptu um eitt prósent hlut.
Lífeyrissjóðir hafa stækkað um 60 prósent á rúmu ári
Kjarninn greindi frá því í gær í fréttaskýringu að mikið breyting hafi átt sér stað á hluthafahópi Arion banka á síðustu mánuðum. Frá því í lok september í fyrra, fyrir fjórum mánuðum síðan, hafa tveir stærstu eigendur bankans á undanförnum árum selt samtals 13,92 prósent hlut í honum. Um er að ræða vogunarsjóðina Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Management. Markaðsvirði þess hlutar sem þeir hafa selt, að mestu á allra síðustu vikum, er yfir 23 milljarðar króna.
Fleiri vogunarsjóðir, sem komu inn í eigendahóp Arion banka eftir að hafa tilheyrt kröfuhafahópi Kaupþings,hafa líka verið að selja sig niður að undanförnum.
Innlendir fagfjárfestar hafa keypt stærstan hluta þess sem vogunarsjóðirnir hafa selt. Þeir eru að mestu íslenskir lífeyrissjóðir. Á síðustu fjórum mánuðum hafa þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins: Gildi, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) bætt við sig samanlagt 4,61 prósent hlut í Arion banka. Markaðsvirði þess hlutar í dag er um 7,7 milljarðar króna.
Fleiri lífeyrissjóðir: Stapi, Birta, Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífsverk hafa allir líka bætt við sig í Arion banka á síðustu mánuðum.
Samanlagður eignarhluti þeirra lífeyrissjóða sem birtast á lista yfir 20 stærstu eigendur bankans var 22,42 prósent í byrjun síðasta árs. Í lok september 2020 hafði hann aukist í 29,17 prósent og síðustu fjóra mánuði hefur hann farið upp í 36,29 prósent. Á rúmu ári hefur hlutur sjóðanna því stækkað um rúmlega 60 prósent. Það þýðir að fjárfesting þeirra átta lífeyrissjóða sem eru á meðal 20 stærstu hluthafa í Arion banka er nú um 60 milljarða króna virði.
Bankar taka meira
Þorri þess sem út af stendur hefur verið keypt af sjóð- og eignastýringarfyrirtækjum banka eða einfaldlega í nafni annarra banka.
Sjóðir í stýringu Stefnis, sjóðstýringarfyrirtæki Arion banka, hafa aukið verulega við hlut sinn í móðurbankanum. Þeir áttu 1,7 prósent hlut í honum í septemberlok en eiga nú 2,55 prósent. Sjóðir innan Kviku eignastýringar hafa einnig bætt vel við sig. Þeir áttu 0,72 prósent hlut fyrir fjórum mánuðum en fara nú með 2,55 prósent hlut. Vert er að taka fram að lífeyrissjóðir eru að jafnaði á meðal stærstu fjárfesta í þeim sjóðum sem sjóðstýringarfyrirtækin stýra. Þeir eiga því óbeint viðbótarhlut í gegnum hlutdeildarskírteini sín í þessum sjóðum.
Þá hafa eignarhlutir sem skráðir eru í eigu hinna þriggja bankanna á íslenska markaðnum líka aukist. Þar er í flestum tilvikum líklegast um að ræða framvirka samninga sem þeir hafa gert við viðskiptavini sína, en ekki viðskipti fyrir eigin bók. Eitthvað er þó hluti af veltubók bankanna.
Kvika er nú skráður með 1,68 prósent hlut í Arion banka, Íslandsbanki með 1,44 prósent hlut og Landsbankinn með 1,09 prósent hlut.
Það sem upp á vantar var svo keypt af áðurnefndum einkafjárfestum, samkvæmt gögnum sem Fréttablaðið hefur undir höndum.