Rannsókn á þætti norska bankans DNB í Samherjamálinu felld niður

Rannsakendur í Noregi telja ekki að starfsmenn DNB hafi tekið þátt í meintum lögbrotum tengdum starfsemi Samherja og hafa fellt niður rannsókn á bankanum.

dnbbank.jpg
Auglýsing

Rann­sókn á mögu­legum þætti starfs­manna norska bank­ans DNB í meintum lög­brotum tengdum starf­semi Sam­herja, meðal ann­ars í Namib­íu, hefur verið felld nið­ur. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá DNB til norsku kaup­hall­ar­innar, en hann er skráður á mark­að. 

Í til­kynn­ing­unni segir að rann­sókn norsku rík­is­sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins hafi ekki leitt að sér neinar upp­lýs­ingar sem þyki til­efni til sak­sóknar gegn ein­stak­lingum sem starfi hjá bank­anum né að hún þyki lík­leg til að leiða til sekt­ar­greiðslna. þar er haft eftir Thomas Mid­teide, yfir­manni sam­skipta­mála hjá DNB, að bank­inn hafi átt í góðu sam­starfi við Økokrim, norsku efna­hags­brota­deild­ina, frá því að rann­sóknin hófst síðla árs 2019, í kjöl­far upp­ljóstr­unar Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Wiki­leaks og Al Jazeera á meintum brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í tengslum við umsvif hennar í Namib­íu.  Í þeirri umfjöllun var fjallað um meintar mútu­greiðsl­ur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætt­i. 

Kjarn­inn greindi frá því í fyrra­haust að æðsti yfir­­­maður Økokrim hafði lýst sig van­hæfan til þess að fjalla um málið vegna fyrri starfa sinna í lög­­­mennsku. Málið var í kjöl­farið fært frá efna­hags­brota­lög­regl­unni til rík­­is­sak­­sókn­­ara.

Auglýsing
Rannsóknin á DNB sner­ist um hvort að bank­inn hefði tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi með því að til­kynna ekki milli­færslur Sam­herj­a­fé­lags til félags í Dúbaí til fjár­mála­eft­ir­lits­ins í Nor­egi sem grun­sam­legar milli­færsl­ur. 

Hentu Sam­herja úr við­skiptum

Í umfjöllun Kjarn­ans um rann­sókn­ina, sem birt­ist í des­em­ber 2020, kom fram að verið væri að rann­saka hvort að DNB hefði tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi vegna hlut­verks hans í því sem „virð­ist vera mútu­greiðslur sem greiddar voru af banka­reikn­ingum félaga Sam­herja hjá DNB,“ sam­kvæmt því sem fram kemur í bréfi Økokrim sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, og er dag­sett 29. apríl 2020.

Rann­sóknin snéri að uppi­stöðu að því að kom­ast til botns í því af hverju DNB til­kynnti ekki greiðslur til Tunda­vala til norska fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem grun­sam­legrar milli­færsl­ur.

DNB, sem er að hluta til í eiga norska rík­is­ins, lauk við­skipta­sam­bandi sínu við Sam­herja í lok árs 2019 vegna þess að stjórn­endur dótt­ur­fé­laga sjáv­ar­út­vegs­risans, sem áttu reikn­inga í bank­an­um, svör­uðu ekki kröfu bank­ans um frek­ari upp­lýs­ingar um starf­semi þess, milli­færslur sem það fram­kvæmdi og tengda aðila, með full­nægj­andi hætti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent