Gangi allar forsendur sem nú eru til staðar eftir gæti bólusetningu gegn COVID-19 verið lokið fyrir lok júní, samkvæmt nýju bólusetningardagatali sem birt var af hálfu heilbrigðisráðuneytisins síðdegis á föstudag.
Dagatalið er unnið í samvinnu við sóttvarnalækni og byggir á fyrirliggjandi upplýsingum um afhendingu bóluefna og áætlanir þar að lútandi.
Því er ætlað að gefa fólki „vísbendingu um hvenær líklegt er að bólusetning hefjist í einstökum forgangshópum“ og „er birt með fyrirvara, enda að hluta til um áætlun að ræða sem mun taka breytingum. Gangi forsendur eftir lýkur bólusetningu gegn COVID-19 hér á landi fyrir lok júní næstkomandi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Þrjú bóluefni eru þegar komin með markaðsleyfi og í notkun hér á landi. Þetta eru bóluefni Pfizer/BioNTech, AstraZeneca og Moderna. Fyrir liggur staðfest áætlun um afhendingu þessara lyfja til loka mars. Þá liggur einnig fyrir að þessir framleiðendur áforma að hafa fyrir lok júní afhent bóluefni fyrir samtals 190.000 einstaklinga.
„Á grundvelli Evrópusamstarfs hefur Ísland gert samninga um kaup á Curavac og Janssen til viðbótar þeim þremur efnum sem þegar eru komin með markaðsleyfi. Þá er Evrópusambandið að ljúka samningi um bóluefni Novavax sem Ísland fær hlutdeild í. Öll þessi lyf eru komin í áfangamat hjá Evrópsku lyfjastofnuninni og þess vænst að þau fái markaðsleyfi innan tíðar. Í samningum um þessi bóluefni kemur fram hve mikið framleiðendur þeirra áætla að geta afhent á öðrum ársfjórðungi, þ.e. fyrir lok júní. Bólusetningardagatalið tekur mið af þessum upplýsingum en gögn hvað þetta varðar eru birt með fyrirvara um að markaðsleyfi liggja ekki fyrir og staðfestar afhendingaráætlanir ekki heldur,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins, en vert er að minnast á að þessar áætlanir eru í fullu samræmi við það sem t.d. Danir kynntu fyrr í vikunni.
Heilbrigðisráðuneytið segist þó ætla, í samvinnu við sóttvarnalækni, að uppfæra bólusetningardagatalið „eftir því sem bólusetningunni vindur fram og eftir því sem nýjar upplýsingar berast um bóluefni og afhendingu þeirra.“