Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis mun láta af störfum frá og með 1. maí næstkomandi, en frá þessu var greint við upphaf þingfundar á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis sagði að Tryggvi hefði beðist lausnar frá starfinu nýlega og forsætisnefnd fallist á beiðni hans.
Tryggvi hefur starfað sem umboðsmaður Alþingis frá 1. nóvember 1998, eða í rúm 22 ár. Umboðsmaður er kjörinn af Alþingi í embættið til fjögurra ára í senn.
Samleið Tryggva með embættinu nær lengra aftur, en hann vann með forvera sínum Gauki Jörundssyni að undirbúningi að opnun skrifstofu umboðsmanns árið 1988, var síðan sérstakur aðstoðarmaður umboðsmanns árið 1989 og aðstoðaði umboðsmann við afgreiðslu mála samhliða störfum sínum sem lögmaður á árunum 1990 til 1998.
„Um þessar mundir eru liðin 33 ár síðan ég kom fyrst að starfi umboðsmanns Alþingis,“ er haft eftir Tryggva á vef embættisins í dag.
Þar segist hann ávallt hafa „notið þess að sinna þessum störfum og rækja það verkefni að greiða úr málum borgaranna í umboði Alþingis gagnvart stjórnsýslunni. Lögfræðilega hefur þetta líka verið einstaklinga áhugavert og gefandi. Fá svið lögfræðinnar hafa á þessum tíma tekið sambærilegum breytingum og stjórnsýslurétturinn og þar hefur starf umboðsmanns Alþingis átt sinn þátt,“ segir Tryggvi.
Hann segist að undanförnu hafa átt þess kost að standa upp frá daglegum störfum umboðsmanns og huga að því sérstaka áhugamáli síni að auka fræðslu fyrir starfsmenn stjórnsýslunnar, bæði ríkis og sveitarfélaga, um starfshætti í stjórnsýslunni og þær reglur sem gilda um meðferð mála þar og þjónustu í þágu borgaranna.
„Liður í því er að taka saman aðgengilegt fræðsluefni um þessi mál og koma fræðslu um þau í fastari skorður. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem ég vil gjarnan fá tækifæri til að leggja lið áður en líður um of á starfsævi mína en eðli verkefna og annir í starfi umboðsmanns eru þannig að veruleg takmörk eru á að öðru verði sinnt samhliða því,“ segir Tryggvi.
Kjartan Bjarni Björgvinsson var settur umboðsmaður Alþingis í október í fyrra og út lok aprílmánaðar, að beiðni Tryggva, en umboðsmaður Alþingis getur beðið um að annar maður sé settur í starf umboðsmanns hafi umboðsmanni verið falin sérstök tímabundin verkefni af hálfu Alþingis.
Forsætisnefnd Alþingis mun fyrir lok aprílmánaðar gera tillögu til Alþingis um einstakling til að gegna embætti umboðsmanns Alþingis og verður hann kjörinn á þingfundi.