Beita ætti fjármálum ríkis og sveitarfélaga af fullum þunga til að skapa kröftuga viðspyrnu inn í nýtt hagvaxtarskeið, en um leið gæta að því að forgangsröðun sé rétt. Styðja ætti betur við nýsköpun og hækka þak greiðslna vegna rannsókna- og þróunarstarfs, að mati Samtaka iðnaðarins, sem í dag stóðu fyrir árlegu Iðnþingi samtakanna.
Í ályktun Iðnþings kemur fram að til þess að skapa „góð efnahagsleg lífsgæði“ á Íslandi þurfi að auka landsframleiðsluna um 545 milljarða króna á næstu fjórum árum. Þá segir að auka þurfi gjaldeyristekjur um 300 milljarða króna yfir tímabilið, eða sem nemur ríflega 1,4 milljarði á viku á þessu fjögurra ára tímabili sem horft er til. Þá þurfi störfum að fjölga um 29 þúsund.
„Takist þetta munu efnahagsleg lífsgæði landsmanna aukast á tímabilinu og landsframleiðsla á mann verða meiri en hún var fyrir núverandi efnahagsniðursveiflu,“ segir í ályktun Iðnþingsins.
Samtök iðnaðarins kalla eftir því að stjórnvöld „slíti fjötrana með markvissum hætti á næstu mánuðum svo hægt verði að hlaupa hraðar og skapa eftirsótt störf og aukin verðmæti.“ Á sama tíma vara samtökin við því að aukin skattlagning muni „hefta vöxt atvinnulífs og tefja endurreisnina“ og leggja til að álögum verði létt af fyrirtækjum eins og kostur er, meðal annars með lækkun tryggingagjalds og fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði.
Í ályktun Iðnþings er kallað eftir „atvinnustefnu“ af hálfu stjórnvalda. Þar er átt við að stefnumótun sé samhæfð í þeim málaflokkum sem helst hafi áhrif á framleiðni og samkeppnishæfni, en Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ræddi einmitt um þörfina á nýrri atvinnustefnu fyrir Ísland í viðtali við Kjarnann í lok síðasta sumars.
„Málaflokkarnir sem einkum þarf að samhæfa og gera þannig úr garði að þeir styðji hver við annan eru menntun, innviðir, nýsköpun, starfsumhverfi og orka og umhverfi. Með atvinnustefnu er lagður grunnur að uppbyggingu til að styðja við efnahagslega velsæld en slík stefna getur ekki síður verið rauður þráður í stefnumótun hins opinbera. Þannig er hægt að ná samræmi í ólíkum málaflokkum svo opinberir fjármunir nýtist á sem hagkvæmastan hátt og dregið sé úr sóun,“ segir í ályktun iðnþings.
Lesa má helstu áhersluatriði Samtaka iðnaðarins hér að neðan:
Starfsumhverfi:
- Beita af fullum þunga fjármálum ríkis og sveitarfélaga til þess að skapa kröftuga viðspyrnu fyrir hagkerfið inn í nýtt hagvaxtarskeið. Gæta að því að forgangsröðun sé rétt.
- Létta álögum af fyrirtækjum eins og kostur er, m.a. lækkun tryggingagjalds og fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði.
- Beita tækjum peningastjórnunar enn frekar til þess að skapa skilyrði fyrir auknar fjárfestingar og vöxt í innlendri eftirspurn. Lækka vexti frekar og auka aðgengi fyrirtækja að fjármagni.
- Bætt eftirlit með lögum um handiðnað með áherslu á aukna skilvirkni og meðalhóf. Vinna áfram að markvissri endurskoðun á gildandi regluverki með það að markmiði að einfalda regluverk og draga úr óþarfa reglubyrði.
- Tryggja að raforku- og flutningsverð raforku á Íslandi sé alþjóðlega samkeppnishæft.
Innviðir:
- Sameina byggingar-, húsnæðis-, skipulags-, sveitarstjórnar- og samgöngumál undir eitt ráðuneyti innviða.
- Auka nýfjárfestingar og viðhald í innviðakerfinu. Nýta samvinnuleið hins opinbera og einkaaðila við uppbyggingu innviða.
- Framlengja átakið „Allir vinna“, a.m.k. út árið 2022. SI munu áfram beita sér fyrir því að neikvæð fjárhagsleg áhrif á verksamninga vegna vísitölubreytinga í tengslum við átakið verði leiðrétt.
- Tryggja stöðuga uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með því að auka framboð á nýju byggingarsvæði, bæta rafræna stjórnsýslu, tryggja aðgengi að gögnum og stytta tímafresti.
Nýsköpun:
- Gera breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, hækkun þaks og endurgreiðsluhlutfall vegna rannsókna- og þróunar, ótímabundnar.
- Hækka skattafrádrátt vegna fjárfestinga einstaklinga í sprotafyrirtækjum úr 75% í 100% til að virkja einkafjármagn í fjárfestingar í frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun.
- Auka enn frekar framlög til Tækniþróunarsjóðs og taka mið af mælanlegum markmiðum um úthlutunarhlutfall þannig að framlög taki mið af eftirspurn.
Menntun:
- Opna aðgengi starfsmenntaðra að háskólanámi og vinna gegn kerfislægum vanda starfsmenntunar er varðar námsframvindu, námslok og tækifæri nemenda til framgangs að námi loknu. Ljúka innleiðingu rafrænna ferilbóka í öllum greinum á árinu 2021.
- Greiða götu þess að framkvæmdir við byggingu nýs Tækniskóla verði hafnar á árinu 2022.
- Innleiða hvata þannig að háskólar útskrifi fleiri nemendur í STEM greinum.
- Setja aukna áherslu á að bregðast við fjölbreyttum vanda í menntakerfinu, með því að huga að stöðu drengja, styrkja stöðu kennara og bregðast við fjárskorti hjá skólum sem bjóða upp á iðnnám og jafna stöðu þess gagnvart hefðbundnu bóknámi.
Nálgast má upptöku af Iðnþingi hér.