Á fyrstu sex mánuðum ársins 2021 fór fjöldi virkra 5G-símakorta hérlendis úr 119 í yfir tólf þúsund. Þau eru nú 2,5 prósent af öllum virkum símakortum hérlendis. Búast má við því að virkum 5G-kortum fjölgi hratt í nánustu framtíð og að virkum 4G kortum fækki samhliða þegar notendur uppfæra sig í hraðari tengingu.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri tölfræði skýrslu Fjarskiptastofu sem áður hét Póst- og fjarskiptastofnun, um fjarskiptamarkaðinn sem sýnir stöðuna um mitt ár 2021.
Um liðin áramót voru 85 prósent allra virkra símakorta á farsímaneti 4G kort. Í lok júní árið 2014 voru 14,8 prósent allra símakorta þannig, en 4G-væðingin hófst af alvöru á Íslandi á því ári.
4G tengingar innan farsímanetsins fela í sér tíu sinnum meiri hraða en 3G tengingar gera. Þær eru auk þess um þrisvar sinnum hraðari en hröðustu ADSL-tengingar.
Stefnt var að því að notkun á 5G-kortum yrði nokkuð almenn á síðasta ári en af því varð ekki. Sú þróun er hins vegar komin á fullt nú og búast má við því að breytist í nánustu framtíð þar sem öll stærstu fjarskiptafyrirtækin á Íslandi ætla sér í öfluga uppbyggingu á 5G-þjónustu á næstu árum.
Gagnamagnsnotkun jókst um 31 prósent milli ára
Fyrir rúmum áratug, nánar tiltekið 2009, voru ekki margir sem notuðu snjalltæki tengt við farsímanet sem helstu leið sína til að nálgast afþreyingu og fréttir. Það ár notuðu íslenskir farsímanotendur alls 243 þúsund gígabæti af gagnamagni á farsímanetum fjarskiptafyrirtækjanna.
Á þessum tíma var snjallsímavæðingin enn stutt á veg komin – fyrsta iPhone-inn var kynntur til leiks sumarið 2007 – og enn tvö ár í að spjaldtölvur voru útnefndar sem jólagjöf ársins af Rannsóknarsetri verslunarinnar.
Síðan þá hefur gagnamagnsnotkunin hins vegar aukist skarpt. Raunar er það svo að á ellefu árum hafði hún 337faldast.
Þessi þróun heldur áfram samhliða því að fleiri færast yfir í 5G. Á fyrri hluta árs 2021 notuðu íslenskir farsímanotendur 48,1 milljón gígabæti, sem er 31 prósent meira en þeir gerði á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 og 102 prósent meira en þeir gerðu á sama tímabili árið 2019.
Nova enn með sterkustu stöðuna
Mest var notkunin á meðal viðskiptavina Nova var með 62,7 prósent markaðshlutdeild á gagnamagnsmarkaði á farsímaneti á fyrri hluta ársins 2021. Viðskiptavinir Símans notuðu 23,8 prósent af gagnamagninu og þeir sem eru með í viðskiptum við Vodafone, sem tilheyrir Sýn-samstæðunni, nýttu 11,4 prósent. Aðrir minni leikendur voru svo með 3,6 prósent af markaðnum samtals.
Þetta er viðsnúningur frá þróun undanfarinna ára. Þá var Nova að bæta við sig markaðshlutdeild á kostnað helstu tveggja samkeppnisaðila sinna.
Það þarf þó að taka fram að þar er um að ræða þá notkun sem fer fram í gegnum farsímanetið, ekki þá sem nýtt er með tengingu við beini (WiFi), en margir farsímar tengjast slíkum beini heima hjá notanda og/eða á vinnustað hans. Síminn er það fyrirtæki sem er með flesta viðskiptavini þegar kemur að hefðbundnum internettengingum.