Farsímaáskriftum farið að fjölga á ný og „tæki í tæki“ áskriftir margfaldast

Í fyrra fækkaði farsímaáskrifum á íslenska fjarskiptamarkaðnum í fyrsta sinn milli ára frá 1994. Þeim hefur fjölgað á ný í ár. Fjöldi svo­kall­aðra „tæki í tæki“ áskrifta hefur farið úr 54 þúsund í byrjun síðasta árs í um 300 þúsund nú.

sími
Auglýsing

Alls voru 485.668 far­síma­á­­skriftir skráðar hjá íslenskum fjar­­skipta­­fyr­ir­tækjum í lok júní síð­ast­lið­ins. Það eru tæp­lega tíu þús­und fleiri áskriftir en voru skráðar um síð­ustu ára­mót.

Sú fjölgun er athygl­is­verð vegna þess að á árinu 2020 fækk­aði far­síma­á­skriftum um 303, en það var í fyrsta sinn frá því að  GSM-sím­inn hóf mæl­an­­lega inn­­reið sína inn á íslenskan fjar­­skipta­­markað árið 1994 sem far­síma­á­­skriftum fækk­aði milli ára. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur haft sitt að segja í þeirri þró­un.

Því hefur orðið mæl­an­legur við­snún­ingur milli ára, sam­hliða því sem íslenskt sam­fé­lag hefur jafnað sig efna­hags­lega eftir fyrstu áhrif far­ald­urs­ins í fyrra. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði skýrslu Fjar­skipta­stofu sem áður hét Póst- og fjar­­skipta­­stofn­un, um fjar­­skipta­­mark­að­inn sem sýnir stöð­una um mitt ár 2021.

Að sama skapi hefur fjöld­i svo­­kall­aðra „tæki í tæki“ áskrifta (e. M2M), sem stundum er kallað „inter­net hlut­anna (e. inter­net of things)“ marg­fald­ast á einu og hálfu ári. Tæknin gengur út á að láta tæki eiga í sam­skiptum hvert við annað yfir inter­net­ið, oft í gegnum far­síma­kerf­ið.

Slíkar áskriftir voru um 54 þús­und í lok árs 2019 en 112 þús­und um síð­­­ustu ára­­mót. Um mitt ár þetta ár voru þær orðnar 299.889. 

Þrjú fyr­ir­tæki sam­an­lagt með 96 pró­sent af mark­aðnum

Á Íslandi eru þrjú fjar­­skipta­­fyr­ir­tæki; Sím­inn, Nova og Voda­fone (sem til­­heyrir Sýn-­­sam­­stæð­unni) sem eru sam­an­lagt með 95,8 pró­­sent mark­aðs­hlut­­deild á far­síma­­mark­að­i. Hlut­fallið hefur hald­ist á þeim slóðum árum sam­an. 

Auglýsing
Þau bættu öll þrjú við sig við­skipta­vinum frá miðju ári í fyrra og til júníloka 2021. Mark­aðs­hlut­deild hvers og eins hélst þó svip­uð. Sím­inn og Voda­fone töp­uðu lít­il­lega en Nova bætti við sig. 

Ein­ungis eitt þeirra, Nova, fjölg­aði við­­skipta­vinum sínum á mark­aðnum á árinu 2020, ein þeim fjölg­aði þó ein­ungis um átta. Mark­aðs­hlut­­deild Nova stóð því nán­­ast í stað en hún var 32,9 pró­­sent í lok síð­­asta árs. 

Fjölgað á ný eftir sam­drátt í fyrra

​​Fyrsta aðgeng­i­­lega töl­fræð­i­­skýrsla Póst- og fjar­­skipta­­stofn­unar um fjar­­skipta­­mark­að­inn kom út árið 2005. Þar voru birtar tölur um fjölda skráðra GSM-á­­skrifta aftur til árs­ins 1994, þegar þær voru 2.119 tals­ins. Næstu árin fjölg­aði þeim jafnt og þétt og voru orðnar 284.521 árið 2005. 

Með snjall­síma­­bylt­ing­unni, sem kom til eftir að fyrsti iPho­ne-inn var kynntur til leiks sum­­­arið 2007, breyt­ist hlut­verk sím­ans umtals­vert og hann fór að nýt­­ast í mun fleiri hluti en áður. Nú til dags er þessi litla tölva í vasa okkar flestra helsta tækið sem notað er til að nálg­­ast afþr­ey­ingu, sam­­fé­lags­miðla og frétt­­ir. Hún er auk þess mynda­­vél, halla­­mál, hlaupa­þjálf­ari, veð­­ur­fræð­ing­­ur, nær­ing­­ar­ráð­gjafi og ýmis­­­legt ann­að. 

Árið 2007 var heild­­ar­­fjöldi GSM-á­­skrifta kom­inn í tæp­­lega 312 þús­und hér­­­lend­­is. Árið 2010 var fjöld­inn kom­inn í 375 þús­und og 2014 fór hann yfir 400 þús­und. 

Fjöld­inn náði því að vera tæp­­lega 476 þús­und árið 2019 en skrapp saman í fyrra í fyrsta sinn frá því að farið var að halda utan um þessar töl­­ur. Hann jókst á ný á fyrri hluta þessa árs og er nú, líkt og áður sagði 485.668. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent