Ómíkron gæti kaffært heilbrigðiskerfið

Þrátt fyrir að einkenni af völdum sýkingar af ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar virðist vægari en af delta gæti hröð útbreiðsla þess sligað heilbrigðiskerfi.

Enn er margt á huldu um þær afleiðingar sem ómíkron-afbrigðið gæti haft. En það þarf ekki marga alvarlega veika sjúklinga til að margfalda álag á sjúkrahús.
Enn er margt á huldu um þær afleiðingar sem ómíkron-afbrigðið gæti haft. En það þarf ekki marga alvarlega veika sjúklinga til að margfalda álag á sjúkrahús.
Auglýsing

Álag á sjúkra­húsum í Bret­landi er mjög mikið um þessar mundir og nýt­ing þjón­ust­unnar sem hægt er að veita um 95 pró­sent. Það má því ekki mikið út af bregða þar í landi líkt og víða ann­ars staðar í heim­in­um. Heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins, Sajid Javid, segir að eng­inn sjúk­lingur smit­aður af ómíkrón-af­brigði kór­ónu­veirunnar hafi lát­ist svo vitað sé en innan við mán­uður er síðan afbrigðið greind­ist og því enn mikil óvissa um áhrif þess á fólk.

Að minnsta kosti tíu sjúk­lingar sem greinst hafa með ómíkrón liggja inni á sjúkra­húsum á Englandi. Javid leggur áherslu á að þótt í ljós komi að afbrigðið valdi mild­ari ein­kennum en delta-af­brigðið gæti fjöldi til­fella engu að síður sligað heil­brigð­is­kerf­ið.

For­stjóri NHS, rík­is­sjúkra­húsa Bret­lands, segir að vegna far­ald­urs COVID-19 hafi þurft að fækka rúmum á spít­ölum um 30 pró­sent til að draga úr sýk­ing­ar­hættu. Hann vakti enn­fremur athygli á því í við­tali við Sky-frétta­stof­una að sá árs­tími sem nú fari í hönd, mestu vetr­ar­mán­uð­irn­ir, sé alltaf álags­tími vegna marg­vís­legra þátta á borð við slys og alls lags veik­indi. Þetta sé að ger­ast á sama tíma og ómíkron sé að dreifa sér um landið og þeirri óvissu sem því fylg­ir.

Auglýsing

Heil­brigð­is­ráð­herr­ann segir að ómíkron sé að dreifa sér á „gíf­ur­legum hraða“. Útbreiðslan sé „for­dæma­laus“. Javid segir að margir haldi því fram að ómíkron valdi væg­ari ein­kennum en það eigi ein­fald­lega eftir að koma í ljós. „Og jafn­vel þótt að þau séu væg­ari þá þarf aðeins lítið hlut­fall sjúk­linga að fá alvar­leg ein­kenni svo að fjöldi þeirra verði mik­ill.“ Hann minnti einnig á að ef álagið á sjúkra­húsin auk­ist enn frekar verði að grípa til aðgerða, m.a. að fresta skurð­að­gerðum og rann­sókn­um.

Rann­sóknir þykja benda til að þrí­bólu­setn­ing, þ.e. þrír skammtar af bólu­efnum sem þegar eru á mark­aði, veiti umtals­vert betri vörn en tví­bólu­setn­ing. Þá benda rann­sóknir einnig til að þrí­bólu­setn­ing verji fólk mun betur gegn ómíkrón.

Örv­un­ar­her­ferðir eru hafnar víða á Vest­ur­lönd­um. Boris John­son, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hvatti landa sína til að þiggja slíka bólu­setn­ingu í ávarpi sem hann flutti í gær­kvöldi.

Tæp­lega 136 þús­und manns hafa þegið örv­un­ar­bólu­setn­ingu á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent