Pétur Krogh Ólafsson, sem verið hefur aðstoðarmaður borgarstjórans í Reykjavík frá 2014, hefur verið ráðinn í nýtt starf þróunar- og viðskiptastjóra hjá Veitum, sem er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur (OR).
Staðan var ekki auglýst, samkvæmt svari sem Kjarninn fékk frá Orkuveitunni.
Í fréttatilkynningu um ráðninguna kemur fram að Pétur komi meðal annars til með að sjá um samskipti og samhæfingu áætlana milli sveitarfélaga og Veitna og muni heyra beint undir framkvæmdastýru fyrirtækisins, Sólrúnu Kristjánsdóttur.
Í tilkynningu Veitna er haft eftir Sólrúnu að Pétur komi inn á mikilvægum tímapunkti þegar mikil uppbygging og vöxtur sé fram undan ásamt þéttingu byggðar þjónustusvæðum Veitna.
„Þá erum við í mörgum stórum samstarfsverkefnum með sveitarfélögunum sem Veitur þjónusta. Slík verkefni krefjast mikils samstarfs og samskipta milli uppbyggingaraðila þannig að við erum mjög ánægð með að fá Pétur, sem býr yfir mikilli reynslu á þessu sviði, til liðs við okkur,“ er haft eftir Sólrúnu.
Í ráðningartilkynningunni er einnig haft eftir Pétri að með nýju starfi þróunar- og viðskiptastjóra skapist „mikil og spennandi tækifæri til að nýta innviði betur og samræma áætlanir milli sveitarfélaga og Veitna“.
„Þannig getum við nýtt tímann og þann öfluga mannauð sem Veitur búa yfir á sem áhrifaríkastan máta. Ég er ótrúlega spenntur að takast á við þessi verkefni enda eru Veitur afar framsækið fyrirtæki og alþjóðlega leiðandi á sínu sviði,“ er haft eftir Pétri um ráðninguna.
Áður en Pétur var ráðinn aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar borgarstjóra árið 2014 hafði hann verið bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og sinnt ritstjórnar- og markaðsmálum á Skjánum. Hann er með BA-gráðu í sagnfræði og MA-gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands.
Veitur er stærsta veitufyrirtæki landsins og hefur það hlutverk að þróa og byggja upp veitukerfi sem þjónustar ríflega 70 prósent landsmanna á einn eða annan hátt.