Aðstoðarmaður borgarstjóra ráðinn, án auglýsingar, í nýja yfirmannsstöðu hjá Veitum

Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráðinn í nýtt starf þróunar- og viðskiptastjóra hjá Veitum, dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur. Starfið var ekki auglýst, samkvæmt svari sem Kjarninn fékk frá Orkuveitunni.

Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráðinn í nýtt starf hjá Veitum.
Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráðinn í nýtt starf hjá Veitum.
Auglýsing

Pétur Krogh Ólafs­son, sem verið hefur aðstoð­ar­maður borg­ar­stjór­ans í Reykja­vík frá 2014, hefur verið ráð­inn í nýtt starf þró­un­ar- og við­skipta­stjóra hjá Veit­um, sem er dótt­ur­fé­lag Orku­veitu Reykja­víkur (OR).

Staðan var ekki aug­lýst, sam­kvæmt svari sem Kjarn­inn fékk frá Orku­veit­unni.

Í frétta­til­kynn­ingu um ráðn­ing­una kemur fram að Pétur komi meðal ann­ars til með að sjá um sam­skipti og sam­hæf­ingu áætl­ana milli sveit­ar­fé­laga og Veitna og muni heyra beint undir fram­kvæmda­stýru fyr­ir­tæk­is­ins, Sól­rúnu Krist­jáns­dótt­ur.

Í til­kynn­ingu Veitna er haft eftir Sól­rúnu að Pétur komi inn á mik­il­vægum tíma­punkti þegar mikil upp­bygg­ing og vöxtur sé fram undan ásamt þétt­ingu byggðar þjón­ustu­svæðum Veitna.

Auglýsing

„Þá erum við í mörgum stórum sam­starfs­verk­efnum með sveit­ar­fé­lög­unum sem Veitur þjón­usta. Slík verk­efni krefj­ast mik­ils sam­starfs og sam­skipta milli upp­bygg­ing­ar­að­ila þannig að við erum mjög ánægð með að fá Pét­ur, sem býr yfir mik­illi reynslu á þessu sviði, til liðs við okk­ur,“ er haft eftir Sól­rúnu.

Í ráðn­ing­ar­til­kynn­ing­unni er einnig haft eftir Pétri að með nýju starfi þró­un­ar- og við­skipta­stjóra skap­ist „mikil og spenn­andi tæki­færi til að nýta inn­viði betur og sam­ræma áætl­anir milli sveit­ar­fé­laga og Veitna“.

„Þannig getum við nýtt tím­ann og þann öfl­uga mannauð sem Veitur búa yfir á sem áhrifa­rík­astan máta. Ég er ótrú­lega spenntur að takast á við þessi verk­efni enda eru Veitur afar fram­sækið fyr­ir­tæki og alþjóð­lega leið­andi á sínu svið­i,“ er haft eftir Pétri um ráðn­ing­una.

Áður en Pétur var ráð­inn aðstoð­ar­maður Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra árið 2014 hafði hann verið bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópa­vogi og sinnt rit­stjórn­ar- og mark­aðs­málum á Skján­um. Hann er með BA-gráðu í sagn­fræði og MA-gráðu í bók­mennta­fræði frá Háskóla Íslands.

Veitur er stærsta veitu­fyr­ir­tæki lands­ins og hefur það hlut­verk að þróa og byggja upp veitu­kerfi sem þjón­ustar ríf­lega 70 pró­sent lands­manna á einn eða annan hátt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent