Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður Illuga Gunnarssonar mennta- og menningarmálaráðherra, hafði samband við fréttastofu RÚV á sunnudag og bað um að ráðherranum yrði gert kleift að tjá sig í framhaldi af frétt í hádegisfréttum miðilsins á laugardag um að GRECO, hópur ríkja gegn spillingu hefði gagnrýnt Ísland fyrir að bregðast ekki við tillögum um hagsmunaskráningu þingmanna. Sigríður sagði við vaktstjóra fréttastofunnar, Ragnhildi Thorlacius, að hún væri að hafa samband vegna þess að RÚV væri „okkar útvarp“. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. Fréttamenn á RÚV eru sagðir ósáttir við þessi vinnubrögð aðstoðarmannsins við að koma á viðtali við Illuga.
Í Fréttablaðinu er eftirfarandi haft eftir Ragnhildi: „Síðan segir hún eitthvað á þá leið að hún sé að hafa samband af því að „þið eruð útvarpið okkar“. Ég hvái og segi: við erum í eigu þjóðarinnar. Þá segir hún að þetta sé stofnun sem heyrir undir menntamálaráðuneytið. Ég segi að ég sjái ekki hvernig það komi málinu við. Og hún segir að það sé engin dýpri merking á bak við það. Það er það sem okkar fer á milli. Svo lýkur þessu samtali.“
Sigríður segist hafa haldið að símtalið hafi verið góðlátlegt og að ummæli hennar hafi verið sett fram í hálfkæringi. Henni sé brugðið að Ragnhildur hafi túlkað orð hennar með þessum hætti og hafi beðið hana afsökunar. Engin djúp meining hafi verið á bakvið orðin. „En maður lærir bara af því og vandar sig betur í samskiptum."
Stundin var þegar búin að spyrja um tengslin
Í fréttinni um GRECO höfðu tengsl Illuga við Orku Energy, sem hafa verið mikið í fréttum undanfarið, verið nefnd. Hann vildi, líkt og áður sagði, fá að bregðast við því. Í viðtalinu sem fréttamaður tók við Illuga greindi hann hins vegar frá því að stjórnarformaður Orku Energy hefði keypt íbúð hans og leigt honum hana aftur. Ástæðan hafi verið fjármálaerfiðleikar sem Illugi og eiginkona hans rötuðu í síðustu ár vegna tekjuleysis og gjaldþrots fyrirtækis sem hann átti hlut í. Illugi sagðist með þessu vilja eiga frumkvæði að því að upplýsa um tengslin.
Í frétt Fréttablaðsins er haft eftir Ragnhildi að þessi ummæli aðstoðarmanns Illuga hafi ekki haft nein áhrif á að ákveðið hafi síðan verið að birta viðtalið við hann. Hins vegar hafi fréttamönnum RÚV ekki verið kunnugt um það að fjölmiðillinn Stundin hefði lagt fram fyrirspurn til ráðherra varðandi eignarhaldsfélagið OG Capital, sem á íbúðina sem ráðherrann býr í og er nú er í eigu stjórnarformanns Orka Energy, en var áður í eigu Illuga.
„Nokkur fjárhagsleg áföll“
Illugi skýrði frá því í hádegisfréttum RÚV á sunnudag, að hann hefði selt íbúð sína í Vesturbæ Reykjavíkur til Hauks Harðarsonar, stjórnarformanns og eins stærsta eiganda Orku Energy. Illugi starfaði sem ráðgjafi fyrir fyrirtækið á árinu 2011. Fulltrúar Orku Energy fóru með Illuga í ferð til Kína í mars og Illugi var auk þess viðstaddur undirritun samstarfssamnings félagsins við kínverska aðila sem gerður var í desember 2013.
Illugi setti stöðuuppfærslu inn á Facebook í gær þar sem kom fram að hann hefði selt íbúðina fyrir 53,5 milljónir króna árið 2013 og að hann leigi hana nú til baka af Hauki á 230 þúsund krónur á mánuði. Illugi var því orðinn ráðherra þegar hann seldi íbúðina. Ástæðan hafi verið „nokkur fjárhagsleg áföll“ sem á hann og eiginkonu hans dundu fyrir nokkrum árum.
Kjarninn greindi frá því í gær að eitt þessarra áfalla hafi verið gjaldþrot Sero ehf., félags sem Illugi hafi átt hlut í og varð gjaldþrota í nóvember 2012. Ekkert fékkst upp í 65 milljón króna kröfur í bú félagsins.
Illugi hefur sagt að hann hafi sýnt frumkvæði af því að upplýsa um þessi tengsl sín við Hauk. Stundin greindi hins vegar frá því á sunnudag að fjölmiðillinn hefði árangurslaust reynt að fá svör frá Illuga um tengsl hans og Orku Energy, meðal annars vegna þess að Haukur Harðarson hefði keypt íbúð Illuga samkvæmt afsali frá 23. júní 2014, áður en hann skýrði frá kaupunum í hádegisfréttum RÚV á sunnudag.