Agnieszka segir að Sólveig Anna muni einangra Eflingu verði hún formaður á ný

Starfandi formaður Eflingar, sem bauð fram með Sólveigu Önnu Jónsdóttur árið 2018, segir að Sólveig sé ekki rétta manneskjan til að leiða stéttarfélagið áfram og að hún sé orðin „málsvari sundrungar“.

Agnieszka Ewa Ziólkowska, starfandi formaður Eflingar, býður sig fram til stjórnar Eflingar á A-listanum, sem Ólöf Helga Adolfsdóttir leiðir.
Agnieszka Ewa Ziólkowska, starfandi formaður Eflingar, býður sig fram til stjórnar Eflingar á A-listanum, sem Ólöf Helga Adolfsdóttir leiðir.
Auglýsing

Agnieszka Ewa Ziółkowska, sem verið hefur starf­andi for­maður Efl­ingar frá því að Sól­veig Anna Jóns­dóttir lét af emb­ætti for­manns í lok októ­ber­mán­að­ar, gagn­rýnir Sól­veigu Önnu harð­lega í grein sem birt­ist á Vísi í dag á þremur tungu­mál­um.

Hún segir segir að það hafi þurft að hrista upp í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, það hafi Sól­veig Anna gert og fyrir það sé hún þakk­lát. „Sól­veig Anna er hins vegar ekki rétta mann­eskjan til að leiða bar­átt­una áfram og hefur sýnt það með óbil­girni og van­getu til að hlusta á raddir ann­arra en sína eig­in,“ segir í grein Agnieszku.

Hún hvetur fólk til þess að lýsa yfir stuðn­ingi við A-lista Efl­ing­ar, sem Ólöf Helga Adolfs­dóttir leiðir í for­manns- og stjórn­ar­kjöri stétt­ar­fé­lags­ins, sem hefst á morg­un.

Sól­veig sjálf sé „orðin málsvari sundr­ung­ar“

Agnieszka segir í grein sinni að það sé bar­áttu­hugur til staðar í hreyf­ing­unni, en að Sól­veig sjálf sé „orðin málsvari sundr­ung­ar“ og að með hana sem for­mann að nýju muni Efl­ing ein­angr­ast.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziółkowska. Mynd: Efling

„Reyna mun á styrk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í náinni fram­tíð til að takast á við þau mik­il­vægu og stóru verk­efni sem eru framund­an. Sundr­ung verka­lýðs­for­yst­unnar eins og stefnir í ef Sól­veig verður í for­ystu Efl­ing­ar, mun veikja stöðu félags­manna okkar og alls verka­fólks á land­inu og með henni mun Efl­ing ein­angr­ast. Verk­efni verka­lýðs­for­yst­unnar framundan eru of mik­il­væg til að við getum við með sundraða verka­lýðs­hreyf­ingu og for­mann sem ekki hlustar á gagn­rýn­i,“ segir í grein Agnieszku.

Sól­veig Anna sagði starfs­fólk ann­arra ASÍ-­fé­laga ætla að álykta gegn sér

Sól­veig Anna birti langa færslu á Face­book í gær­kvöldi, sem hún lýsti því meðal ann­ars að í kosn­ing­unum í Efl­ingu árið 2018 þar sem hún og B-listi hennar hafði bet­ur, hefði henni borist til eyrna að starfs­fólk Efl­ingar væri „með grófum hætti að stunda áróður á kjör­stað.“ Í færslu hennar segir að henni hafi svo fljót­lega eftir að hún hóf störf sem for­maður Efl­ingar hafa áttað sig á því að á skrif­stofu Efl­ingar væru „mann­eskjur sem af ýmsum ástæðum ætl­uðu sér aldrei að vinna með mér, ætl­uðu sér aldrei að sýna mér virð­ingu, hvorki per­sónu­lega eða vegna stöðu minnar sem for­manns Efl­ing­ar.“

Hún segir þennan hóp fólks hafa leikið þann leik í aðdrag­anda fyrsta ASÍ þings­ins sem Sól­veig og félagar hennar hafi mætt á að „senda rógs-bréf á um það bil 40 manna hóp valda­fólks innan ASÍ til að mála upp þá mynd af mér að ég væri ein­hvers­konar glæpa­kona“ og að þetta hafi svo aftur verið gert í aðdrag­anda þings Starfs­greina­sam­bands­ins.

Í færslu sinni sagði hún svo frá því að ástæðan fyrir því að hún væri að rifja þetta upp væri sú að hún hefði heyrt af því að í dag ætti að „halda sér­stakan fund starfs­fólks þeirra félaga sem eiga aðild að ASÍ“ og að til­gangur fund­ar­ins væri að „sam­þykkja og senda frá sér ályktun til stuðn­ings starfs­fólki skrif­stofu Efl­ing­ar, og gegn mér og fram­boði Bar­áttu­list­ans til stjórnar félags­ins.“

Auglýsing

„Nú get ég auð­vitað ekki full­yrt að þau sem und­ir­búa að senda ályktun frá stórum hópi starfs­fólks félaga innan ASÍ skilji hversu gróf­lega þau eru með þessu að blanda sér í lýð­ræð­is­legar kosn­ingar Efl­ing­ar­fólks um það hver stýrir félag­inu. En ég held að þau geri það. Ég held að til þess sé leik­ur­inn gerð­ur. Til að reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir að ég og félagar mínir á Bar­áttu­list­anum getum sigr­að.

Atvinnu­rek­endur vilja ekki deila völdum með vinnu­afl­inu. Valda­stéttin vill ekki deila völdum með vinnu­afl­inu. Og stað­reynd­in, sú sem verður æ aug­ljós­ari, er að þau sem telja sig rétt­mæta eig­endur verka­lýðs­fé­lag­anna okk­ar, þau sem vinna innan skrif­stofu­virk­is­ins, þau vilja það ekki held­ur. Þeim finnst það ein­fald­lega frá­leitt. Þau eiga hreyf­ing­una, þau eiga ASÍ og þau ætla að ráða. Þau sjá ein­fald­lega ekk­ert athuga­vert við reyna að hafa áhrif á það hver stýrir Efl­ingu. Þeim finnst ekki nóg komið af ofstæk­is­fullum árásum og nafn­lausum róg­burði. Nei, það verður að halda áfram að kynda bál­ið,“ segir sömu­leið­is, í færslu Sól­veigar Önnu.

Árið 2018 voru í fyrsta skipti í næstum tveggja ára­tuga sögu verka­lýðs­fé­lags­ins Efl­ingar haldnar kosn­ing­ar. Ég og...

Posted by Sól­veig Anna Jóns­dóttir on Monday, Febru­ary 7, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent