Agnieszka tekin við formennsku í Eflingu

Á stjórnarfundi í Eflingu í dag var afsögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur sem formanns þessa næst stærsta stéttarfélags landsins afgreidd. Kosið verður um nýjan formann fyrir lok marsmánaðar á næsta ári.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska.
Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska.
Auglýsing

Kjör­inn vara­for­maður Efl­ing­ar, Agnieszka Ewa Ziólkowska, tók við emb­ætti for­manns stétt­ar­fé­lags­ins á stjórn­ar­fundi í dag. Á sama fundi var afsögn Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur úr emb­ætti for­manns Efl­ingar afgreidd. 

Ólöf Helga Adolfs­dótt­ir, sem hefur verið mikið í fjöl­miðlum und­an­farið eftir að henni var sagt upp störfum sem hlaðmanni hjá Icelanda­ir, tekur við sem vara­for­maður Efl­ing­ar. Næstu for­manns- og stjórn­ar­kosn­ingar munu fara fram fyrir lok mars á næsta ári. 

Í til­kynn­ingu frá stjórn Efl­ingar segir að stjórn félags­ins leggi áherslu á að tryggja órofa starf­semi félag­ins. „Fé­lags­ins bíður það mikla verk­efni und­ir­búa næstu kjara­samn­ings­við­ræður en samn­ingar eru lausir í lok næsta árs. Í þessu verk­efni mun Efl­ing áfram vera sterkur málsvari verka­fólks. Stjórn Efl­ingar vill þakka Sól­veigu Önnu Jóns­dóttur og Við­ari Þor­steins­syni fyrir þeirra störf í þágu félags­ins á þeim tæp­lega fjórum árum sem þau hafa verið í for­ystu. Fram­lag þeirra í þágu lág­launa­fólks, kvenna og fólks af erlendum upp­runa á Íslandi verður seint full­þakk­að.“ 

Auglýsing
Framundan sé að ein­beita sér að þeim verk­efnum sem stjórn beri að sinna. „ For­maður mun starfa með skrif­stof­unni að því að greiða úr þeim vanda­málum sem hafa komið upp í starf­semi félags­ins. Þrátt fyrir þann ágrein­ing sem ratað hefur í fjöl­miðla eru stjórn og starfs­fólk ein­huga í því að tryggja þjón­ustu við félags­menn Efl­ing­ar. Stjórn biður fjöl­miðla um að veita félag­inu frið til að sinna þessum verk­efnum og mun ekki veita nein fjöl­miðla­við­töl að sinn­i.“

Mikil drama­tík síð­ustu daga

Gustað hefur um Efl­ingu síð­ustu daga og ásak­anir gengið á víxl milli fyrr­ver­andi stjórn­enda félags­ins ann­ars vegar og eins stjórn­ar­manns og nokk­urra núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna hins veg­ar. 

​​For­­saga máls­ins er sú að í júní sam­­þykktu starfs­­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­­lega. Í henni voru stjórn­­endur stétt­­ar­­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­­fólki. Trún­­að­­ar­­menn starfs­­manna und­ir­­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­­manna. 

Fyrir viku birti RÚV svo við­­tal við Guð­­mund Bald­­ur­s­­son, stjórn­­­ar­­mann í Efl­ingu, þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­ars um að starfs­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­ar­­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­­­veig Anna starfs­­­menn á föst­u­­­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér. 

Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­­­gjarnt að stjórn­­­endur veltu ábyrgð á inn­­­an­hús­­­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sól­­veig Anna af sér og ásak­aði starfs­menn um að haga hrakið sig úr starfi. Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Efl­ing­ar, sagði upp störfum í kjöl­farið en hann og Sól­veig Anna hafa starfað náið sam­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent