Níu mánaða tap Play 1,4 milljarðar – Opna skrifstofu í Litáen í desember

Flugfélagið Play greinir frá því í uppgjörstilkynningu í dag að það ætli sér að opna skrifstofu í Vilníus í Litáen í desember. Höfuðstöðvar, auk allra áhafna og flugreksturs, verði þó áfram hér á landi.

Flugfélagið Play hóf sig á loft fyrr á árinu eftir langan undirbúningstíma.
Flugfélagið Play hóf sig á loft fyrr á árinu eftir langan undirbúningstíma.
Auglýsing

Flug­fé­lagið Play tap­aði 10,8 millj­ónum banda­ríkja­dala, jafn­virði 1,4 millj­arða króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Sæta­nýt­ing félags­ins í októ­ber­mán­uði var 67,7 pró­sent og hefur verið stíg­andi í henni frá því í sum­ar, en í júlí var sæta­nýt­ingin ein­ungis 41,7 pró­sent.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu í dag, en þar er einnig sagt frá því að í des­em­ber muni Play opna útibú í Litá­en, í höf­uð­borg­inni Viln­í­us.

Play segir að höf­uð­stöðvar félags­ins verði áfram á Íslandi, auk allra áhafna og flug­rekst­urs, en að starfs­menn í Litáen muni sinna ýmsum stoð- og tækni­hlut­verk­um. Félagið segir að reiknað sé með að fimmtán til tutt­ugu manns muni starfa á skrif­stofu þess í Litáen innan fárra mán­aða.

Auglýsing

Með því að stað­setja hluta verk­efna í Viln­íus seg­ist Play fá „gott aðgengi að sér­fræð­ingum innan upp­lýs­inga­tækni, staf­rænnar þró­un­ar, mark­aðs­mála, fjár­mála og þjón­ustu“ sam­kvæmt því sem kemur fram í frétta­til­kynn­ingu félags­ins, en þar má lesa að til standi að vera með þjón­ustu­ver þar ytra, þrátt fyrir að þjón­ustu við íslenska við­skipta­vini verði áfram sinnt frá Íslandi.

„Nýja úti­búið mun enn fremur ýta undir alþjóð­lega menn­ingu og skapa teng­ingar við nýja birgja, þjón­ustu­veit­endur og sam­starfs­að­ila sem geta boðið hag­kvæm og álit­leg kjör,“ segir í til­kynn­ingu Play.

„Hug­myndin er sú að halda niðri kostn­aði“

Þar segir einnig að Play etji kappi við flug­fé­lög sem hafi lágan kostn­að­ar­grund­völl og aðgengi að sér­þekk­ingu á alþjóð­legum mark­aði. „Það er því nauð­syn­legt fyrir PLAY að geta mætt þeim sem jafn­ingj­um. Hugs­unin er sú að halda niðri kostn­aði og lág­marka yfir­bygg­ingu svo hægt sé að bjóða lág far­gjöld í hörðu sam­keppn­isum­hverfi. Opnun skrif­stof­unnar í Viln­íus er mik­il­vægt skref í þá átt að tryggja lágan kostn­að­ar­grund­völl PLAY á sama tíma og félagið hefur starf­semi beggja vegna Atl­ants­hafs­ins og und­ir­býr fram­tíð­ar­vöxt,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu um upp­gjörið og stöðu félags­ins flutti Play alls tæp­lega 25 þús­und far­þega í októ­ber og hefur alls flutt 68 þús­und far­þega frá því félagið fór fyrst í loft­ið.

Áttu 77 millj­ónir doll­ara í eigið fé

Félagið segir að rekst­ur­inn á þriðja árs­fjórð­ungi hafi verið undir vænt­ing­um, vegna áhrifa COVID-19 á tekj­ur, en að allir aðrir fjár­hagsliðir hafi verið í sam­ræmi við vænt­ing­ar. „Fjár­hags­staða PLAY er sterk og lausafé mikið sem gerir félag­inu kleift að fylgja við­skipta­á­ætlun sinni á kom­andi mán­uðum þegar inn­viðir eru und­ir­búnir fyrir flug til Norð­ur­-Am­er­íku. Eigið fé þann 30. sept­em­ber var 77 millj­ónir banda­ríkja­doll­ara sem jafn­gildir 29,2% eig­in­fjár­hlut­fall­i,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Nokkuð hefur farið fyrir til­kynn­ingar um manna­ráðn­ingar Play á und­an­förnum vikum og mán­uð­um. Fyr­ir­tækið segir að 63 starfs­menn hafi bæst í hóp­inn á þriðja árs­fjórð­ungi, 41 flug­liði, 12 flug­menn og 10 starfs­menn á skrif­stofu. Heild­ar­fjöldi starfs­manna félags­ins er sagður kom­inn upp í 135.

Play er í dag með 16 áfanga­staði í flug­á­ætlun sinni og hefur boðað að þeim fjölgi enn frekar á næst­unni, bæði í Evr­ópu og Norð­ur­-Am­er­íku. Félag­ið, sem er skráð á First Nort­h-­markað Kaup­hall­ar­inn­ar, mun kynna upp­gjör sitt á opnum kynn­ing­ar­fundi sem hefst klukkan 15:30 föstu­dag­inn 5. nóv­em­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent