Segir ríkið taka til sín 73 prósent af eingreiðslu vegna hækkunar lífeyrisréttinda

Prófessor emerítus og sérfræðingur hjá Eflingu segir að af þeim 76 þúsund krónum sem sjóðsfélagar í Lífeyrissjóði verzlunarmanna geti vænst að fá að meðaltali í eingreiðslu muni ríkið taka til sín 55.700 krónur. Eftir sitji 20.300 krónur.

Stefán Ólafsson.
Stefán Ólafsson.
Auglýsing

Stefán Ólafs­son, pró­­fessor emeritus við Háskóla Íslands og sér­­fræð­ingur hjá Efl­ing­u-­­stétt­­ar­­fé­lagi, segir að rík­is­sjóður muni taka til sín 73 pró­sent af þeirri ein­greiðslu sem sjóðs­fé­lagar í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna munu fá síðar í mán­uð­inum vegna tíu pró­sent aukn­ingar á rétt­indum þeirra. 

Sjóð­ur­inn til­kynnti í morgun að stjórn hans hefði ákveðið að hækka áunnin líf­eyr­is­rétt­indi í sam­­eign­­ar­­deild sjóðs­ins um tíu pró­­sent, sem leiði til sam­svar­andi hækk­­unar líf­eyr­is­greiðslna. Hækk­­unin mið­­ast við síð­­ast­liðin ára­­mót og er til­­komin vegna góðrar ávöxt­unar eigna und­an­farin ár sem hefur styrkt trygg­inga­fræð­i­­lega stöðu sjóðs­ins. Með­­al­raun­á­vöxtun eigna síð­­­ustu 10 ára er 6,7 pró­­sent, síð­­­ustu 20 ára 4,5 pró­­sent og síð­­­ustu 30 ára 5,4 pró­­sent.

Auglýsing
Sjóð­ur­inn mun greiða í ein­greiðslu út upp­­safn­aða hækkun á árinu og mun sú greiðsla ger­­ast í nóv­­em­ber. Hún nær til um tutt­ugu og eitt þús­und sjóð­­fé­laga, nemur rúmum 1,6 millj­­örðum króna eða að með­­al­tali um 76 þús­und krónum fyrir hvern líf­eyr­is­þega.

Stefán segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að ein­greiðslan, sem er líkt og áður sagði 76 þús­und krónur að með­al­tali á sjóðs­fé­laga, muni glögg­lega sýna virkni líf­eyr­is­kerf­is­ins, því þá taki við skerð­ingar hjá TR og skatt­greiðsla til rík­is­ins af þess­ari upp­bót.

Ríkið muni þannig, sam­kvæmt útreikn­ingum Stef­áns, taka til sín 55.700 krónur af þessum 76.000 krónum „þannig að sjóð­fé­lagi sem er elli­líf­eyr­is­þegi fær í vas­ann rétt rúmar 20.300 krónur af þessum 76.000 krónum sem hann hefur áunnið sér auka­lega í líf­eyr­is­sjóði. Þar er miðað við sjóð­fé­laga sem hefur að jafn­aði 200.000 krónur úr líf­eyr­is­sjóði á mán­uði.

Þetta segir Stefán að sýni „svart á hvítu hvernig ríkið leyfir fólki ekki að njóta þess ávinn­ings sem það hefur af skyldu­sparn­að­inum í líf­eyr­is­sjóð­um, heldur tekur um 73 pró­sent af því í lækkun útgjalda vegna almanna­trygg­inga (TR) og í tekju­skatt. Skerð­ingar nema 43.244 krónum og tekju­skattur 12.430, eða sam­tals 55.674.“

Líf­eyr­is­kerfið í beinn­i! Í morgun var til­kynnt að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna ætli að auka rétt­indi sjóð­fé­laga um 10%,...

Posted by Stefán Ólafs­son on Thurs­day, Novem­ber 4, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent