Andersson sögð vera orðin ákveðin í að leiða Svíþjóð inn í Atlantshafsbandalagið

Svenska Dagbladet segir frá því í dag Magdalena Andersson forsætisráðherra vilji að Svíar gangi í Atlantshafsbandalagið í sumar. Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands segir nokkrar vikur í að Finnar kynni ákvörðun sína um aðild að bandalaginu.

Magdalena Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar og Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands í Stokkhólmi í morgun.
Magdalena Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar og Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands í Stokkhólmi í morgun.
Auglýsing

Magda­lena And­ers­son for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar og for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins er sögð ákveðin í því að ganga frá aðild lands­ins að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu í sum­ar, sam­kvæmt heim­ild­ar­mönnum Svenska Dag­bla­det, sem segir frá þessu í dag.

Síðan inn­rás Rússa í Úkra­ínu hófst hefur And­ers­son ekki úti­lokað mögu­leik­ann á því að Sví­þjóð gangi í banda­lag­ið, en á vett­vangi rík­is­stjórnar hennar stendur nú yfir grein­ing á stefnu lands­ins í örygg­is- og varn­ar­mál­um, sem á að klár­ast fyrir lok maí.

Sam­kvæmt frétt Svenska Dag­bla­det, sem byggir á upp­lýs­ingum frá heim­ild­ar­mönnum innan Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins, er það nú orðið mark­mið And­ers­son að Sví­þjóð gangi í NATÓ á leið­toga­fundi banda­lags­ins sem fram fer í Madríd í lok júní.

Afton­bla­det greinir sömu­leiðis frá því að Sós­í­alde­mókra­ta­flokk­ur­inn, sem sögu­lega hefur lagst gegn aðild að banda­lag­inu, hafi boðað til sér­staks fundar eftir rúman mánuð til þess að fjalla um vend­ingar í örygg­is­málum og þykir lík­legt að þar muni And­ers­son leita stuðn­ings flokks­fé­laga við inn­göngu Sví­þjóðar í banda­lag­ið.

Ákvörðun Finn­lands um aðild innan nokkra vikna

Þessar fregnir ber­ast á sama degi og Sanna Marin for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands er í Stokk­hólmi til þess að funda með And­ers­son, en í Finn­landi rétt eins og í Sví­þjóð hefur umræða um inn­göngu í Atl­ants­hafs­banda­lagið verið hávær síðan að Rússar létu til skarar skríða gegn Úkra­ínu í lok febr­ú­ar­mán­að­ar.

Í báðum ríkjum hefur almenn­ings­á­litið til aðildar að Atl­ants­haf­banda­lag­inu snú­ist frá því að stríðið hóf­st, á þann veg að fleiri eru nú hlynntir aðild að NATÓ en mót­falln­ir.

Auglýsing

Á blaða­manna­fundi sem þær Marin og And­ers­son héldu sam­eig­in­lega í Stokk­hólmi í dag sagði Marin að ein­ungis nokkrar vikur væru í að finnska stjórnin myndi taka ákvörðun sína um aðild að NATÓ, en í dag veitir finnska rík­is­stjórnin þing­inu skýrslu um mat sitt á því hvernig örygg­is- og varn­ar­málaum­hverfi Finn­lands, sem landamæra­ríkis Rúss­lands, hefur breyst í kjöl­far inn­rás­ar­innar í Úkra­ínu.

Sam­kvæmt finnskum fjöl­miðlum er í skýrsl­unni ekki tekin afstaða til aðildar að NATÓ, með eða á móti, heldur á hún að nýt­ast sem umræðu­grund­völlur fyrir þing­ið. Kostir og gallar aðildar eru sagðir tíund­aðir í plagg­inu.

Muni eiga náið sam­tal um fram­haldið

Sam­kvæmt frétt á vef sænska rík­is­sjón­varps­ins SVT sagði Marin við fjöl­miðla­menn á blaða­manna­fundi í morgun að það væri engin við­líka örygg­is­trygg­ing eins og aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu, en sam­kvæmt fimmtu grein Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans skal telja vopn­aða árás á einn með­lim banda­lags­ins sem árás á þá alla.

Marin sagði enn­fremur að Finnar og Svíar myndu taka sjálf­stæðar ákvarð­anir um fram­hald­ið, en þó í nánu sam­tali.

„Við munum eiga náið sam­tal og eiga bein­skeyttar og heið­ar­legar sam­ræð­ur. Það er mik­il­vægt að vita hvert við erum að stefna,“ hefur SVT eftir Mar­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent