Arion banki hefur hækkað óverðtryggða breytilega íbúðalánavexti sína um 0,4 prósentustig í 4,29 prósent. Bankinn hefur sömuleiðis hækkað óverðtryggða fasta vexti til þriggja ára um 0,6 prósentustig í 5,24 prósent.
Bankinn fylgir þar með í fótspor Landsbankans, stærsta banka landsins, sem tilkynnti um hækkun vaxta í gær. Þetta gerist í kjölfar þess að Seðlabanki Íslands ákvað í síðustu viku að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig upp í tvö prósent, en þeir vextir hafa nú hækkað um 1,25 prósentustig úr 0,75 prósentum í maí.
Viðbúið var að allir lánveitendur á íbúðalánamarkaði myndu hækka óverðtryggða vexti sína vegna þessa og Landsbankinn varð fyrstu til þess. Hann að tilkynnti í gær að breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum Landsbankans myndu hækka um 0,35 prósentustig. Þeir verða eftir breytinguna 4,20 prósent.
Búast má við því að Íslandsbanki tilkynnti um vaxtahækkun fyrir vikulok.
Hækkar útgjöld heimila strax
Ljóst er að hækkun á vöxtum Landsbankans, og hinna stóru bankanna sem munu án efa fylgja í kjölfarið á næstu dögum, mun bíta í buddu landsmanna. Stóru bankarnir þrír hafa sópað til sín íbúðalánum frá síðasta vori samhliða því að húsnæðisverð hefur hækkað skarpt og upphæðir lána samhliða hækkað mikið. Hlutdeild banka í útistandandi íbúðalánum er nú um 70 prósent en var 55 prósent í byrjun árs 2020.
Á sama tíma og þessi þróun hefur átt sér stað hefur orðið eðlisbreyting á lántökum landsmanna við það að hlutfall óverðtryggðra lána af öllum íbúðalánum hefur hækkað gríðarlega. Það var 27,5 prósent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 prósent.
Hagnaður stóru bankanna þriggja: Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka var 60 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er meiri hagnaður en þeir hafa skilað innan heils árs frá 2015. Hagnaðurinn er drifinn áfram af vaxtatekjum, aðallega vegna íbúðalána, og hærri þóknanatekjum. Vaxtamunur stóru bankanna, sem er umtalsvert hærri en í samanburðarlöndum, hefur haldist tiltölulega stöðugur þrátt fyrir að bankaskattur hafi verið lækkaður umtalsvert.
Á markaðsdegi Arion banka sem fór fram fyrr í þessum mánuði kom fram að bankinn ætlar sér að greiða um og yfir 60 milljarða króna til hluthafa í arð og með endurkaup á bréfum á næstunni. Sú upphæð bætist við 25,5 milljarða króna sem þeir hafa fengið á fyrstu níu mánuðum ársins. Alls verða allt að 88 milljarðar króna losaðir til hluthafa frá byrjun yfirstandandi árs og þangað til að útgreiðsluáformum bankans er lokið.
Lífeyrissjóðirnir með bestu kjörin
Sem stendur bjóða lífeyrissjóðir upp á hagstæðustu óverðtryggðu íbúðalánin. Það gæti þó breyst í nánustu framtíð þegar næstu ákvarðanir um vaxtatöflu lána þeirra verða teknar.
Gildi, þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins, býður bestu óverðtryggðu kjörin sem stendur, 3,45 prósent vexti, og Brú lífeyrissjóður býður upp á 3,8 prósent vexti.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, ákvað í síðasta mánuði að stofna nýjan lánaflokk sjóðsfélagalána og lánar nú óverðtryggð lán til íbúðarkaupa með breytilegum vöxtum. Vextir hans eru nú 3,85 prósent.