Arkitektar og skipulagsfræðingar gagnrýna hugmyndir Sigmundar Davíðs

Reykjavik_Airport_aerial.jpg
Auglýsing

Stjórnir Arki­tekta­fé­lags Íslands, Félags íslenskra lands­lags­arki­tekta og Skipu­lags­fræð­inga­fé­lags Íslands gagn­rýna hug­myndir Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar um við­bygg­ingu við Alþing­is­hús­ið, nýja stað­setn­ingu Lands­spít­al­ans og fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar í nýrri, sam­eig­in­legri álykt­un. Álykt­un­ina senda félögin frá sér vegna ummæla Sig­mundar um þessi mál.

Sig­mundur Davíð sagði nýlega að grípa þyrfti til varna fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl og koma í veg fyrir að borg­ar­yf­ir­völd „grafi stöðugt undan flug­vell­inum og beiti brögðum til þess að losna við hann.“ Stjórn­irnar þrjár segja að skiptar skoð­anir séu um stað­setn­ingu flug­vall­ar­inar og því sé mik­il­vægt að hvetja til hóf­stilltrar og mál­efna­legrar umræðu í stað þess að sá fræjum sund­ur­lynd­is. „Um­mæli for­sæt­is­ráð­herra um að borg­ar­yf­ir­völd beiti brögðum til að losna við Reykja­vík­ur­flug­völl eru í því ljósi óheppi­leg sem og sú hug­mynd að ráð­herra fari með yfir­stjórn skipu­lags- og mann­virkjamála á Reykja­vík­ur­flug­velli. Að taka skipu­lags­vald frá sveit­ar­félögum er ekki skyn­sam­legt og ekki í anda þess að færa ákvarð­anatöku í skipu­lags­málum nær almenn­ing­i.“

Auglýsing

Sig­mundur hefur einnig lagt fram drög að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að byggja við­bygg­ingu við Alþingi eftir teikn­ingum Guð­jóns Sam­ú­els­son­ar. „Það er afar óeðli­legt að ætla að ákveða út­lit bygg­ingar með jafn afger­andi hætti og lagt er til í þingsá­lykt­un­ar­till­ögu um ald­ar­af­mæli full­veldis Ís­lands sem birt var þann 1. apríl síðast­lið­inn,“ segir í álykt­un­inni um þessar hug­mynd­ir. Þó mik­il­vægt sé að huga að sögu­legu gildi umhverfis sé það veik fram­tíð­ar­sýn að taka útgangs­punkt í for­tíð­inni. „Mik­il­vægt er að upp­bygg­ing og hönnun end­ur­spegli raun­veru­leika þess sam­félags sem er til staðar hverju sinni. Því er mun nær að leggja alúð við að greina sam­hengi við­kom­andi verk­efnis svo hægt verði að fletta saman nýju og gömlu á auð­mjúkan en skap­andi hátt.“

Um hug­myndir Sig­mundar Dav­íðs um nýja stað­setn­ingu Land­spít­al­ans segja félögin að þó ákvörðun um stað­setn­ing­una sé umdeild sé hún byggð á fag­legri skipu­lags­gerð og hefur farið í gegnum lög­bundna ferla. „Það er því afar gagn­rýn­is­vert að setja jafn mik­il­vægt verk­efni í upp­nám með illa ígrund­uðum pæl­ingum um aðra stað­setn­ingu. Því er vert að hafa í huga að orðum fylgja ábyrgð.“

Þá ræða stjórn­irnar þrjár um hug­myndir um end­ur­bygg­ingu Val­hallar og segja að upp­bygg­ingu í þjóð­garð­inum á Þing­völlum þurfi að skoða í víð­ara sam­hengi. „Liggja þarf fyrir skýr framtíð­ar­sýn um þjóð­garð­inn í heild sinni í tengslum við nátt­úru, sögu­legt umhverfi og heimsminja­skrá Sam­ein­uðu þjóð­anna, áður en teknar eru ákvarð­anir um ein­stakar aðgerð­ir,“ segir í álykt­un­inni.

Þá segja félögin þrjú að umræða um skipu­lag og arki­tektúr geti verið snú­in. „Í því ljósi viljum við bjóða stjórn­völdum upp á sam­tal um okkar byggða umhverfi, hvort sem það er stórt eða lít­ið, gam­alt eða nýtt.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None