ASÍ: Misneyting á starfandi hælisleitendum jaðrar í verstu tilfellum við mansal

ASÍ segir að mun fleiri hælisleitendur séu á vinnumarkaði en opinberar tölur gefi til kynna. Ýmis samtök styðja að þeir einstaklingar sem fá dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða þurfi ekki að sækja um atvinnuleyfi sérstaklega.

Hælisleitendur hafa meðal annars verið að starfa í byggingageiranum
Hælisleitendur hafa meðal annars verið að starfa í byggingageiranum
Auglýsing

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) segir vís­bend­ingar úr vinnu­staða­eft­ir­liti sam­bands­ins og stétt­ar­fé­laga lands­ins benda til þess að raun­veru­leg atvinnu­þátt­taka hæl­is­leit­enda sé miklu meiri en opin­berar tölur gefi til kynna. „Mál sem koma inn á borð stétt­ar­fé­lag­anna benda til þess að þessi hópur sé sér­stak­lega ber­skjald­aður fyrir mis­neyt­ingu af hendi atvinnu­rek­enda, sem í verstu til­fellum jaðra við man­sal.“

Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga sem lagt var fram af þing­mönnum Pírata, Sam­fylk­ing­ar, Flokks fólks­ins og Við­reisnar í sept­em­ber og er nú til með­ferðar hjá vel­ferð­ar­nefnd. Fyrsti flutn­ings­maður þess er Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Pírata.

Í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála

Í frum­varp­inu er lagt til að útlend­ingar sem hafa fengið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða vegna sér­stakra tengsla við landið sam­kvæmt lögum um útlend­inga verði und­an­þegnir kröfu um tíma­bundið atvinnu­leyfi hér á landi. Með því er átt við að þeir ein­stak­lingar sem fá dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða, t.d. vegna þess að þeir upp­fylla ekki skil­yrði þess að fá alþjóð­lega vernd, þurfi ekki að sækja um atvinnu­leyfi sér­stak­lega heldur verði þeim heim­ilt að vinna þegar þeir hafa fengið dval­ar­leyfi.

ASÍ styður breyt­ing­una og bendir á í umsögn sinni að þau sjón­ar­mið sem fram komi í frum­varp­inu hafi einnig verið sett fram í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­sam­starfs Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna á haust­mán­uðum 2021 undir kafl­anum um mál­efni útlend­inga.

Auglýsing
Þar sagði orð­rétt: „Lög um útlend­inga og lög um atvinnu­rétt­indi útlend­inga verða tekin til end­ur­skoð­unar með það að mark­miði að rýmka ákvæði er varða útgáfu dval­ar­leyfa á grund­velli atvinnu­þátt­töku og auka skil­virkni með ein­földun ferla. Þá verði þeim sem hér fá dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða sér­stakra tengsla við landið veitt und­an­þága frá kröfu um atvinnu­leyfi. Haft verður sam­ráð við aðila vinnu­mark­að­ar­ins í þess­ari vinn­u.“

Sögð mikil rétt­ar­bót

Fleiri hafa skilað inn umsögnum um frum­varp­ið. Þar á meðal er Vinnu­mála­stofn­un, sem bendir á að efn­is­lega sé um að ræða sam­bæri­lega til­lögu og sett er fram í frum­varpi Jóns Gunn­ars­sonar um breyt­ingar á lögum um útlend­inga. Það frum­varp er afar umdeilt og skiptar skoð­anir um það meðal þing­manna hvort það fáist sam­þykkt þótt þing­flokkar stjórn­ar­flokk­anna hafi afgreitt það og hleypt frum­varp­inu í efn­is­lega umræðu. Vinnu­mála­stofnun telur ríka ástæðu til að gera hóp­inn und­an­þegna kröfu um tíma­bundið atvinnu­leyfi með hlið­sjón af hag­ræði fyrir þá sjálfa og skil­virkn­i. 

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Íslands styður frum­varpið og segir það vera mikla rétt­ar­bót fyrir þá sem hafa fengið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða, eða á grund­velli sér­stakra tengsla við land­ið, að þurfa ekki að sækja um tíma­bundið atvinnu­leyfi heldur verði þeim heim­ilt að vinna jafn­skjótt og dval­ar­leyfið hefur verið veitt. Rauði kross­inn fagnar sömu­leiðis þeim breyt­ingum sem lagðar eru til í umsögn sinni og telur að  ákvæði frum­varps­ins bæti veru­lega stöðu þeirra útlend­inga sem fengið hafa dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða sér­stakra tengsla við land­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent