Vill fá að vita hvaða stjórnmálamenn úr hvaða flokkum komi fram sem viðmælendur á RÚV

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, vill fá að vita hvernig viðmælendaval RÚV úr stjórnmálastétt skiptist milli stjórnmálaflokka. Hún lagði fram sambærilega fyrirspurn í fyrra.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Auglýsing

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hefur lagt fram skrif­lega fyr­ir­spurn til Lilju D. Alfreðs­dótt­ur, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, þar sem hún vill að ráð­herr­ann svari því hvaða stjórn­mála­menn hafi komið fram sem við­mæl­endur í þáttum RÚV frá síð­ustu alþing­is­kosn­ing­um. Inga vill fá að vita um alla slíka sem hafa komið hafa fram í útvarps- og sjón­varps­þátt­um, hvaða stjórn­mála­flokki þeir til­heyra, í hvaða þáttum þeir hafa ver­ið, hve lengi og hversu oft. 

RÚV sjálf­stætt opin­bert hluta­fé­lag í eigu íslenska rík­is­ins. Þótt ráð­herra fari með eign­ar­hlut rík­is­ins í fyr­ir­tæk­inu er níu manna stjórn yfir því sem kosin er á aðal­fundi eftir til­nefn­ingu Alþing­is. Ráðu­neyti Lilju, sem fer með fjöl­miðla­mál í rík­is­stjórn­inni, gerir hins vegar þjón­ustu­samn­ing við RÚV um fjöl­miðlun í almanna­þág­u. 

Auglýsing
Í lögum um RÚV segir meðal ann­ars að fyr­ir­tækið skuli í starfs­háttum sínum vera til fyr­ir­myndar um gæði og fag­leg vinnu­brögð og ábyrgj­ast af sann­girni og hlut­lægni sé  gætt í frá­sögn, túlkun og dag­skrár­gerð. Þá skuli upp­lýs­inga leitað frá báðum eða öllum aðilum og sjón­ar­mið þeirra kynnt sem jafn­ast. Þar segir einnig að RÚV skuli vera „óháð stjórn­mála­leg­um, hug­mynda­fræði­legum og efna­hags­legum hags­munum í efn­is­með­ferð og rit­stjórn­ar­á­kvörð­un­um“ og að þar skuli stunduð vönduð og gagn­rýnin frétta­mennska sem rýnir meðal ann­ars störf yfir­valda, félaga og fyr­ir­tækja sem hafa áhrif á hag almenn­ings. Allar dag­skrár­á­kvarð­anir eiga að vera teknar á fag­legum for­send­um. 

Vinstri græn oft­ast í þáttum RÚV

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Inga spyr um hvaða stjórn­mála­menn hafi komið fram á RÚV. Snemma árs í fyrra lagði hún fram sam­bæri­lega fyr­ir­spurn um hverjir hefðu komið þar fram frá árinu 2018.

Í svari ráð­herra þá kom fram að alls hefðu 28 pró­sent allra þing­­manna sem verið höfðu við­­mæl­endur í sjón­­varps- og útvarps­­þáttum RÚV frá árinu 2018 verið frá Vinstri græn­um. Það er tölu­vert hærra hlut­­fall en fylgi flokks­ins í alþing­is­­kosn­­ing­unum 2017, en til sam­an­­burðar var hlut­­deild Sjálf­­stæð­is­­manna og Mið­­flokks­­manna í þáttum RÚV tölu­vert minna en fylgi þeirra í síð­­­ustu kosn­­ing­­um.

­Sam­­kvæmt svari ráð­herra höfðu alþing­is­­menn mætt sem álits­gjafar í sjón­­varps- og útvarps­­þáttum RÚV alls 1.198 sinnum á umræddu tíma­bili. Árið 2020 voru þær 402 tals­ins, árið 2019 voru þær 366 og árið 2018 voru þær 400. Í jan­úar 2021 voru svo 30 heim­­sóknir skráð­­ar.

Af öllum flokkum sem áttu full­trúa á þingi komu þing­­menn úr flokki Ingu Sæland sjaldn­­ast fram í þáttum RÚV á þessu tíma­bili. Þar hafði Inga sjálf komið fram níu sinnum í sjón­­varps­þáttum RÚV og átta sinnum í útvarps­­þáttum síðan árið 2018. Hinn þáver­andi þing­­maður flokks­ins, Guð­­mundur Ingi Krist­ins­­son, hafði svo aðeins komið fram einu sinni í sjón­­varps­þætti og einu sinni í útvarps­­þætti á tíma­bil­inu. Sam­tals voru því heim­­sóknir þing­­manna flokks­ins 19. Flokkur fólks­ins fékk 8,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2021 og er nú með sex þing­menn.

Í svar­inu sem ráð­herra veitti í fyrra kom fram að hlut­­deild heim­­sókna á meðal þing­­manna Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins hefði verið mun minni en fylgi hans í kosn­ing­unum 2017, en 18 pró­­sent stjórn­­­mála­­manna sem birt­ust í þáttum RÚV voru frá flokkn­um, sem fékk 25,2 pró­­sent atkvæða í þeim kosn­ing­um. Einnig hall­aði þessi sam­an­­burður á Mið­­flokk­inn, þar sem þing­­menn hans voru á bak við sex pró­­sent heim­­sókna í sjón­­varps- og útvarps­­þáttum stöðv­­­ar­inn­­ar, þrátt fyrir að flokk­­ur­inn hefði fengið tæp­­lega ell­efu pró­­sent atkvæða árið 2017.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent