Áslaug Arna braut gegn lögum með því að setja Ásdísi Höllu sem ráðuneytisstjóra

Umboðsmaður Alþingis segir að lögbundnar undantekningar frá því að auglýsa stöðu ráðuneytisstjóra í nýju ráðuneyti lausa til umsóknar, og að setja einhvern tímabundið í embættið á þeim grundvelli sem ráðuneytið byggði á, hafi ekki átt við.

Áslaug Arna – Blaðamannafundur: Hertar aðgerðir 30. okt 2020
Auglýsing

Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, ráð­herra háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar, var ekki heim­ilt að setja Ásdísi Höllu Braga­dótt­ur, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra í Garða­bæ, sem ráðu­neyt­is­stjóra til þriggja mán­aða án und­an­geng­innar aug­lýs­ing­ar. Þetta er nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis en álit þess efnis var birt í dag. Ás­laug Arna setti Ásdísi Höllu í emb­ættið í lok jan­úar síð­ast­lið­ins, en starfið var svo aug­lýst laust til umsóknar 3. febr­ú­ar. Greint var frá því í gær að Ásdís Halla væri á meðal þeirra átta sem sækj­ast eftir starf­inu. Áður hafði Ásdís Halla verið ráð­inn verk­efna­­stjóri við und­ir­­bún­­ing ráðu­­neyt­is­ins, sem er nýtt, í byrjun des­em­ber í fyrra. 

Í áliti umboðs­manns segir að aðrar leiðir hefðu verið færar til að ekki væri gengið gegn ákvæðum laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. „Við stofnun ráðu­neyt­is­ins hefði orð­ið til nýtt emb­ætti og ekki yrði séð að lög­bundnar und­an­tekn­ingar frá því að aug­lýsa það laust til umsókn­ar, og setja tíma­bundið í emb­ættið á þeim grund­velli sem ráðu­neytið byggði á, ættu við um þá stöðu sem var upp­i.“

Auglýsing
Þegar fyr­ir­ætlun stjórn­valda um að koma hinu nýja ráðu­neyti á fót hafi legið fyrir hefði ráð­herr­anum borið að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana til að tryggja starf­semi þess við stofn­un. „Ef ekki hefði verið nægur tími til að aug­lýsa emb­ættið og ljúka skip­un­ar­ferli áður en ráðu­neytið tæki form­lega til starfa hefðu verið færar leiðir að lögum til bráða­birgða­ráð­staf­ana. Ólög­fest sjón­ar­mið um skyldur stjórn­valda til taf­ar­lausra við­bragða við þessar aðstæður gætu ekki rétt­lætt ákvörðun ráð­herra um tíma­bundna setn­ingu ráðu­neyt­is­stjóra án aug­lýs­ingar með vísan til þeirra sjón­ar­miða sem ráðu­neytið byggði á.“

Umboðs­maður áréttar í álit­inu mik­il­vægi þess að stjórn­völd fylgi þeim laga­reglum sem gilda um veit­ingu opin­berra starfa og emb­ætta og virði þau mark­mið sem þeim er ætlað að þjóna. „Það eigi ekki síst við um ráðu­neyti sem fari með æðstu stjórn fram­kvæmda­valds­ins. Hann tekur fram að ekki séu líkur á að dóm­stólar myndu meta setn­ingu ráðu­neyt­is­stjór­ans ógilda og að emb­ættið hafi nú verið aug­lýst en mælist engu að síður til þess að ráðu­neytið taki fram­vegis mið af sjón­ar­mið­unum í álit­in­u.“

Sendi tveimur ráð­herrum bréf

Umboðs­­maður Alþing­is, Skúli Magn­ús­­son, sendi fyrr bréf á bæði Lilju Alfreðs­dóttur ferða­­mála-, menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­­ur­­björns­dóttur þann 1. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem óskað var eftir því að ráð­herr­­arnir skýrði laga­­legan grund­­völl fyrir skipan eða tíma­bund­inni setn­ingu nýrra ráðu­­neyt­is­­stjóra í þeirra ráðu­­neyt­u­m.

Lilja, sem stýrir líka nýju ráðu­neyti, tók ákvörðun um það skömmu áður að skipa Skúla Egg­ert Þórð­­ar­­son rík­­is­end­­ur­­skoð­anda sem ráðu­­neyt­is­­stjóra í sínu ráðu­­neyti, en Áslaug Arna setti Ásdísi Höllu dag­inn áður tíma­bundið í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra í sínu nýja ráðu­­neyti.

Af bréfum Umboðs­­manns Alþingis til ráð­herr­anna tveggja mátti merkja að hann átt­aði sig ekki fylli­­lega á því hvaða laga­­legi grund­­völlur hafi verið fyrir þess­­ari skipun og setn­ingu í emb­ætti – að minnsta kosti óskaði hann skýr­inga.

Í til­­­felli Skúla Egg­erts fylgdi til­­kynn­ingu frá ráðu­­neyt­inu um skipan hans lítil klausa um að hann hefði verið skip­aður án aug­lýs­ingar í emb­ættið á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­­­manna rík­­­is­ins, þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­­­manna rík­­­is­ins milli starfa í 36. grein lag­anna.

Umboðs­­maður Alþingis benti hins vegar á það í bréfi sínu til Lilju að rík­­is­end­­ur­­skoð­andi væri emb­ætt­is­­maður sem heyri laga­­lega undir Alþingi og sé sjálf­­stæður og engum háður í störfum sín­­um.

Umboðs­maður hefur ekki birt neitt álit vegna skip­unar Lilju á Skúla Egg­erti enn sem komið er.

Annar ráðu­neyt­is­stjóri á meðal umsækj­enda

Á meðal ann­­arra umsækj­enda um starf ráðu­neyt­is­stjóra í hinu nýja ráðu­neyti Áslaugar Örnu er Sig­ríður Auður Arn­­ar­dótt­ir, ráðu­­neyt­is­­stjóri í umhverf­is-, orku- og loft­lags­ráðu­­neyt­inu. Hún hefur gegnt því starfi í sjö ár. 

Aðrir umsækj­endur eru Borg­hildur Ein­­ar­s­dóttir for­­stjóri, Elmar Hall­gríms Hall­gríms­­son fram­­kvæmda­­stjóri, Huld Magn­ús­dóttir fram­­kvæmda­­stjóri, Katrín Olga Jóhann­es­dóttir fram­­kvæmda­­stjóri, Ragn­hildur Ágústs­dóttir sölu­­stjóri og Sig­­urður Erlings­­son við­­skipta­fræð­ing­­ur.

Skipað verður í starfið til fimm ára frá 1. maí næst­kom­andi. Þriggja manna nefnd hefur verið falið að meta hæfni umsækj­enda og skila skýrslu til ráð­herra. Í henni sitja Mar­grét Ein­­ar­s­dótt­ir, sem er for­­mað­­ur, Gunnar Björns­­son og Heiðrún Jóns­dótt­­ir. Guð­­mundur Árna­­son, ráðu­­neyt­is­­stjóri í fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­inu, er í umboði ráð­herra settur ráðu­­neyt­is­­stjóri til þess að ann­­ast skip­un­­ar­­ferl­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent