Ásmundur orðaður við framboð í Rangárþingi ytra og útilokar það ekki

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að hann hafi verið hvattur til að gefa kost á sér fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Rangarþingi ytra. Hann er búinn að flytja lögheimili sitt úr Reykjanesbæ á sveitabæ við Hellu.

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er orðaður við framboð í Rangarþingi ytra í vor.
Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er orðaður við framboð í Rangarþingi ytra í vor.
Auglýsing

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, segir ótíma­bært að tjá sig um orðróm þess efnis að hann hyggi á fram­boð til sveit­ar­stjórnar í Rang­ar­þingi ytra í vor. Hann úti­lokar þó ekk­ert í þeim efn­um.

Ásmundur er þegar búinn að flytja lög­heim­ili sitt í sveit­ar­fé­lag­ið, á heim­il­is­fangið Árbæj­ar­hjá­leigu 2, 851 Hellu. Áður var hann skráður til heim­ilis í Reykja­nes­bæ.

Hann segir við Kjarn­ann að hann hafi fengið hvatn­ingu um að bjóða sig fram í sveit­ar­fé­lag­inu, en orðróm­ur­inn sem Kjarn­inn spurði Ásmund út í felur í sér að stefnt sé að því að hann verði sveit­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sveit­ar­fé­lag­inu.

Flokk­ur­inn er með hreinan meiri­hluta í Rangár­þingi ytra í dag eftir að hafa fengið yfir 62 pró­sent atkvæða í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018.

Auglýsing

Ásmundur segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn frá því að hann sett­ist á þing árið 2013 sem ein­hverjir hafi leitað til hans fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar um að hella sér aftur í sveit­ar­stjórn­ar­málin og af því hafi ekki orðið til þessa. Áður en Ásmundur sett­ist á þing var hann bæj­ar­stjóri í Garði á Reykja­nesi frá 2009-2012.

Þing­mað­ur­inn segir við Kjarn­ann að ef til þess kæmi að hann gæfi kost á sér í vor og yrði sveit­ar­stjóri í Rangár­þingi ytra í kjöl­farið myndi það þýða að hann myndi víkja af Alþingi, en sem áður, að það sé ótíma­bært að vera að velta þessu fyrir sér.

Ásmundur var kjör­inn fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kosn­ing­unum í haust í þriðja skipti frá því hann náði fyrst kjöri árið 2013 og er sjötti þing­maður Suð­ur­kjör­dæm­is.

Fyrsti vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi er Björg­vin Jóhann­es­son.

Fréttin hefur verið upp­færð með upp­lýs­ingum um breytta lög­heim­il­is­skrán­ingu Ásmund­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent